Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Page 64

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Page 64
46 Tímarit Þjóðrœlmisfélags Islendinga í stað, verður þá svo mikil, að ekki er um annað liugsað í syipinn. Ein- falt, en jafnframt stórfenglegt dæmi um slík kapplilaup um flotið, var gullæðið í Californíu og í Al- aska. Auðvitað er ekki um neitt 'þvílíkt að ræða á íslandi, en þó verður töluvert vart þeirrar til- hneigingar við að sækja úr einum stað í annan og jafnvel úr einum landshluta í annan, og vera nokkr- ar vikur eða mánuði í hverjum stað. Þetta stafar af beinni fjár- hagslegri þörf, og er ekkert við því að segja, meðan ástæður eru þann- ig. En verði slíkt óróalíf alment, er um leið horfin sú festa, sem skapaðist við reglubundið atvinnu- líf sveitanna í gamla daga, og' veitti skilyrði til ástundunar fræðslu og menta. Br, frá mínu sjónarmiði séð, mikil hætta á því, að ringulreið' atvinnulífsins valdi kæruleysi um andleg verðmæti — flotið taki hug manna allan. Jafnvel þó að ekkert væri gjört af hálfu ])jóðarheiidarinnar eða stjórnarvaldanna til þess að af- stýra þeim hættum, sem fram und- an eru, mundu ávalt margir ein- staklingar hefja sig upp yfir þær eða sneiða hjá þeim. Þeir mundu þá verða einskonar andleg'ur aðall, sem legði stund á hina hærri menn- ing og mentun, en allur fjöldinn mundi láta berast fyrir straumi og vindi og hrifsa til sín það, sem að honum yrði rétt á krossgötunum, án þess að hugsa til þess, hvað mundi gjöra-st, áður morgnaði. Þessi mismunur mentamanna og alþýðu er sú bölvun, sem fram að þessu hefir hnekt framför flestra þjóða, annara en Islendinga. A þeirri stundu, sem þjóðin glæpist á því að ætla f jöldanum flotið eitt, en fáeinum útvöldum djásn fag'- urra lista og fræðilegra bókmenta, hefir hún ha.fnað morgni liins nýja árs og valið ærzlin af völdum álf- anna. Um leið og íslenzk menning hættir að vera þjóðmenning', hætt- ir hún bæði að vera íslenzk og að vera menning. 4. Úrrœði og umbætur. Þeir menn eru til, sem í grunn- fæmi sinni halda því fram, að ís- land “fljóti að feigðarósi,” eins og skáldið komst eitt sinn að orði. En jafnvel þó að svo væri, yrði ekki hægt að segja um íslenzku þjóðina í dag, að liún flyti “sof- andi” að feigðarósi. Það má líta misjöfnum augum á margt, sem fram fer á íslandi, en um það verð'- ur varla deilt, að íslenzka þjóðin hefir hug á að bjarga sér sem bezt gegnir. Ókunnugur maður, sem færi til ísland's, mundi að líkindum verða var við all-snarpar deilur og ómjúkar orðasennur. En séu mál- in skoðuð ofan í kjölinn af góð- girni, mun það koma í ljós, að bar- áttan stendur fyrst og fremst um tvent. Annað er það, hvernig varðveita skuli frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar. Það er ífáum orðum sagt baráttan fyrir tilverunni. Hitt atriðið er viðhald íslenzkrar menn- ingar með tækjum hins nýja tíma og við hans aðstæður. Yil eg nú skýra frá nokkru því, sem gjört er til þess að sporna við þeim liætt- um, er eg hefi nefnt, og' efla menn- ingarlíf landsins við hin nvju skil- yrði. Hér að framan hefir verið talað um flutning fólks úr sveitum, og þar af leiðandi hnignun í félags-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga
https://timarit.is/publication/895

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.