Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Side 109
Aldarfjórðungsafmœli HásJcóla Islands
91
Af fyrstu kennurum háskólans eru
þessir enn starfandi: Dr. Ágúst
H. Bjarnason, prófessor Gruð-
nxundur Hannesson og prófessor
'Si gurðlir P. Sívertsen, nú í þann
veginn að hætta kenslu. Enn þess-
ir eru auk þeirra núverandi aðal-
kennarar háskólans: prófessor
Ólafur Lárusson, dr. Sigurður
Nordal, dr. Alexander Jóhannes-
son, dr. Magnús Jónsson, pró-
fessor Guðmundur Thoroddsen,
prófessor Ásmundur Guðmunds-
son, prófessor Árni Pálsson, pró-
fessor Niels Dungal núverandi
rektor, prófessor Jón Hj. Sigurðs-
•son, prófessor Bjarni Benedikts-
son og dr. Þórður Elyjólfsson. Eru
þeir nær allir löngu alþjóð kurinir,
svo þörf gjörist eigi, að lýsa þeim
hér frekar. Enda er vonandi, að
það komist aldrei á, að annað en
hæfileikar, lærdómur og reynsla,
ráði vali þeirra manna, sem skipa
eiga kennarasess í Háskóla Is-
lands.*)
Þrátt fyrir örðug og andvíg
launa- ogstarfskjör, hafa kennarar
háskólans, sem alkunnugt er, unnið
mikil og margvísleg ritstörf, samið
kenslubækur og vísindarit, sjálfum
þeim og skólanum til sæmdar og
Þjóðinni til nytja. Svo að kalla ár-
lega hefir fylgt Árhók Háskólans
vísindaleg ritgjörð eftir einhvern
háskólakennarann, á íslenzku eða
erlendu máli, og er það orðið
myndarlegt ritsafn og merkilegt.
Þar eru meðal annars þessi rit:
Yfirlit yfir sögu sullaveikinnar á
íslandi, eftir Guðmund Magnús-
s°n; ritgjörðir um SJiipulag bæja
*)Um núverandi kennaraliti er hér fylgt nýj-
ustu Arhóh háskólans. fyrir árið 1934-1935.
og Mannmœlingar Islendinga, eftir
Guðmund Hannesson; Um tilfinn-
ingalífið og Heimsmynd visimd-
anna, eftir Ágúst H. Bjarnason;
Meðferð opinberra mála og Þjóð-
bandalagið, eftir Einar Arnórs-
son; Land og þjóð eftir Guðmund
Finnbogason; Grágás og lögbæJc-
urnar, eftir Ólaf Lárusson; Völu-
spá (gefin út með skýringum),
eftir Sigurð Nordal; UpptöJc sálma
og sálmalaga í lútersJcum sið á ís-
landi, eftir Pál E. Ólason; og Saga
Nýja-testamentisins, eftir Magnús
Jónsson. Auk þess hafa kennarar
háskólans samið ýms önnur vís-
indarit og fræðibækur við alþýðu-
hæfi: Dr. Ágúst H. Bjarnason,
“ Yfirlit yfir sögu mannsandans, ”
og kenslubækur í sálarfræði og
rökfræði; dr. Sigurður Nordal,
merkt rit um Snorra Sturluson,
útgáfur af Egils sögu og öðrum
norrænum fornritum; dr. Alex-
ander Jóliannesson, mörg rit um
íslenzka málfræði, einkum á þýzku;
en prófessor Niels Dungal hefir
gjört merkilegar rannsóknir á liús-
dýrasjúkdómum. Þá hafa guðfræði
prófessorarnir Sigurður P. Sívert-
sen, Magnús Jónsson og Ásmund-
ur Guðmundsson allir samið eftir-
tektarverð rit og kenslubækur.
Loks er það á allra vitorði, hversu
mikil og merkileg ritstörf liggja
eftir þá fyrverandi háskólakenn-
ara, Einar hæstaréttardómara Arn-
órsson, Dr. Pál E. Ólason skrif-
stofustjóra, Dr. Guðmund Finn-
bogason landsbókavörð, og dr. Jón
biskup Helgason, að ógleymdum
þeim dr. B. M. Ólsen, sem var liinn
víðfrægasti vísindamaður og Dr.
Jóni J. Aðils sagnfræðing, sem