Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Qupperneq 117
Aldarfjórðungsafmœli Háskóla Islands
99
dyrum, og vart unt að verja betur
því fé, er menn kunna að liafa af-
lögum, en til þess, að greiða götu
þeirra manna, sem líklegir eru til
þjóðþrifa.
Þar sem grein þes.si er rituð með
Islendinga vestan hafs í liuga, er
sérstakt ánægjuefni að minnast
þess, að liáskólanum hafa borist
eig'i allfáar myndarlegar fjárgjaf-
ir frá Islendingum hér í landi, eða
fyrir tilstilli þeirra. Má þar fyrst
nefna dánargjöf Jóhanns Jónsson-
ar, er “hafði að áeggjan dr.
liögnv. Péturssonar gjört liáskól-
ann að' einkaerfingja sínum.” (Ár-
hók Háskóla islands, 1928-1929,
bls. 4). Nam sjóður þessi uppliaf-
lega nálægt 20,000 krónum, en er
nú kringum 30,000 krónur, og hafa
nokkrir stúdentar þegar notið
styrks úr honum.
Um aðra tvo sjóðu héðan að
vestan skulu tilfærð orð Arbókar
háskólans, 1933-1934, bls. 5, úr
ræðu þáverandi rektors dr. Alex-
anders Jóhannessonar: “Þá liafa
a síðastliðnu ári áskotnast tveir
sJÓðir. Annar er hinn svonefndi
“Kanadasjóður, ” að upphæð 25,-
000 dollarar, sem Kanadastjórn
hefir gefið í tilefni Alþingishátíð-
arinnar, og skal vöxtum þess sjóðs
varið handa íslenzkum námsmönn-
am, kandídötum eða stúdentum, er
stunda vilja nám við kanadiska
háskóla, einkum um þau efni, er
Kta að rannsóknum fiskveiða og
landbúnaðar. Hinn sjóðurinn er
gjöf Heimfararnefndar Þjóð-
ræknisfélagsins, ” að uppliæð nál.
} 5,000 krónur, og’ hefir háskólaráð-
]Ö látið semja frumvarp að skipu-
lags skrá fyrir sjóðinn, er send
hcfir verið vestur til staðfesting-
ar, en í þessum tillögum háskóla-
ráðs er gjört ráð fyrir að verja 3/4
hlutum vaxta sjóðsins til þess að
efla andlegt samband milli ensku-
mælandi þjóða og Islendinga og
verja fé þessu til útgáfu rita, til
námsstyrkja og fyrirlestrahalds.”
Sú skipulagsskrá hefir nú sam-
þykt verið af málsaðiljum og munu
margir góðs njóta af sjóði þessum
í framtíðinni. Annars gjörist eng-
in þörf, að lýsa því hér í ritinu,
hvernig nefndir sjóðir eru til orðn-
ir. Yil eg aðeins minna á það, að
“Kanadasjóður ” var stofnaður
fyrir ötula forgöng'u Heimfarar-
nefndar Þjóðræknisfélagsins og'
fulltrúa Kanada á Alþingisliátíð-
inni. (Smbr. ritgerð séra Ragnars
E. Kvar an ‘ ‘ Ivanadasjóður, ’ ’
Lesbók Morgumblaðsins, 1. október,
1933).
Tveir Islendingar vestur hér
hafa auk þess gefið háskólanum
höfðinglegar gjafir, þeir Asmund-
ur P. Jóhannsson, er gaf stúdenta-
gai'ðinum 5,000 krónur, eða and-
virði eins herbergis, til minningar
um konu sína, frú Sigríði Jóhanns-
son; og Magnús Hinriksson, er ný-
lega gaf háskólanum sömu upp-
hæð, eins og segir í upphafi grein-
ar þessarar.
En fyrir því er hér fjölyrt um
þessar fjárgjafir liéðan að vestan
til háskólans, að dæmi þeirra, sem
Iþar hafa átt hlut að máli, má vel
vera öðrum Islendingum í landi hér
til fvrirmyndar.
Ei'lendir háskólar hafa einnig
sýnt traust sitt og hlýhug til há-
skólans með því að senda honum
bókagjafir, og liið sama hafa ein-
.stakir menn gjört innan lands og
utan. Kveður þar langmest að