Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Blaðsíða 137
Seytjánda ársþing Þjóðrceknisfélagsins
119
sina, þrátt fyrir tollmúrana. Þeir lyfta
sér yfir þá og fara til Manchester á Eng-
landi og selja þar vörur sínar ódýrar en
Englendingar geta framleitt samslags vöru.
Þeir selja baömullarvörur á Indlandi og
í Ástralíu fyrir lægra verö en þaö kostar
Englendinga aö kaupa efniö í samslags
vöru. Þeir selja léreft og rayon-vörur í
'J oronto í Kanada fyrir lægra verð en
verksmiöjueigendur í Quebec segjast geta
framleitt slíka vöru fyrir og þeir senda
búðar-skip sín — skip, sem búin eru út
eins og glæsilegustu sölubúðir — um öll
höf og inn á hverja höfn, þar sem þeir fá
að koma, með þenna ódýra varning. Þeir
verða að gjöra alt þetta, eöa deyja drotni
sinum, en til þess eru Japanar ekki búnir.
Menn segja að verkalýðurinn í Japan sé
þrælar og aumleg vinnudýr á lægsta stigi
tilverunnar, og iðnhöldarnir miskunnar-
lausir böðlar. Ef til vill hafa þeir menn,
er. svo hugsa og tala, eitthvað fyrir sér.
En Japanar sjálfir líta ekki svo á. Þeirra
lífsskoðun er mjög ólik lífsskoðun Vestur-
landamanna. Hjá þeim er það aldrei aðal-
atriði að fá hátt kaup fyrir vinnu sina,
heldur hitt, að vinna þjóö sinni — þjóöar-
metnaður og þjóðarsómi er þeirra eina og
aðal hugsun, og svo vinna þeir að honum
sem einn maður. Japanar eru þjóðræknir
menn og afkoma þeirra, nú síðustu árin,
er ómótmælanlegur vottur þess, hve mátt-
ugt afl að þjóöræknin er, þegar að rækt er
lögð við liana. Og Japanar kunna að fara
með hana, og nú, þegar andstæöur kljúfa
flestar eða allar þjóðir heims og lama
þrek þeirra til hvers sem gjöra skal, þá
eru þeir allir eitt í því að vernda sína
l'jóð frá eyðilegging og glötun.
En því er eg að minnast á þetta hér?
Kemur þetta oss þjóðræknum íslendingum
’ Atneríku nokkuö við? Það kemur hverju
emasta mannsbarni í álfu þessari við, og
l5að alvarlega. Þessar tvær þjóðir, sem
eg hefi nú minst á, eru ekki þær einu, sem
eru króaðar inni. Þær eru ekki þær einu,
Sem eru i verzlunarlegum vanda staddar.
Þaö eru nálega allar þjóðir heims, og þær
eru allar að leita að útgöngudyrum. Bret-
land hið mikla veröur aö framfleyta 800
manns á hverri fermílu; Svíþjóð og Dan-
möik eru í stórvandræðum með að koma
°lki sínu fyrir. En svo eru önnur lönd,
svo sem Kanada, þar eru 3 um hverja fer-
mílu; i Bandaríkjunum 27, og i Ástraliu
2. Viö getum getið nærri hversu afar
geigvænlegt þetta ástand er, og þess, hverj-
ar afleiðingarnar óhjákvæmilega verða,
ef mennirnir ekki vakna og sjá aö sér.
Vor eigin þjóð, íslenzka þjóðin, hefir ekki
farið varhluta af umróti því, sem hefir
verið og er hjá öllum öðrum þjóðum, sem
ekki er heldur að búast við. Andstæðurn-
ar, sem skift hafa þjóðum annara landa,
hafa klofið hana. Flokkarnir, eg veit ekki
hvað margir, berast á banaspjótum, nú
einmitt þegar henni reið sem mest á friði
og eindrægni, því þó að fjölmennar þjóðir
fái staðist innbyrðis ófrið og ósamlyndi,
lengri eöa skemri tírna, þá er það óhugs-
andi að eins fámenn þjóö og íslendingar
eru, fái staðist það til lengdar og haldið
sjálfstæði sínu. Þeir hafa við nógu raman
reip að draga, þó að þeir væru allir eitt,
sem líka að þeir verða að læra, ef vel á að
fara.
íslendingar hafa ekki farið varhluta af
verzlunarkreppu þeirri, sem öllurn þjóðum
háir nú, og er það því tilfinnanlegra fyr-
ir þá, þar sem vörutegundir þær, sem þeir
hafa til að selja á alheimsmarkaðinn eru
svo fáar -—• ekki nema fiskur og sjávar-
afurðir, svo teljandi sé. Ef salan á þeim
bregst, ef markaðinum fyrir þær vörur
þeirra er lokað, þá er líka framtíðar og
lífsvon þjóðarinnar þrotin. Hér er því
um hið alvarlegasta vandamál að ræða,
og ef sambönd og kunnugleiki Vestur-ís-
lendinga hér í álfu í firntíu ár má sín nokk-
urs, þá sannarlega ættu þeir ekki að liggja
á liði sínu nú, með það að styðja að þvi
á allan hátt að opna fyrir bræðrum sínum
lieima eða með þeim, markað fyrir sem
mest af vörum þeirra í þessari heimsálfu.
Yður er öllum kunnugt um, að i síðasta
mánuði andaðist George V., konungur á
Bretlandi, sjálfsagt sá mest virti og vin-
sælasti þjóðhöfðingi sem uppi hefir verið'
í langa tíð, og vér minnumst hans með
lotningu og þakklæti. Fráfall þess ástsæla
þjóðhöfðingja gefur ástæðu til umhugs-
unar um margt í fari hans, lífi og stefnu.
T. d. hvernig stóð á þeim ástsældum, sem
liann ávann sér ? Einmitt nú þegar
konungs og veldisstólar annara þjóða léku