Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Blaðsíða 146
128
Tímarit Þjóðrælmisfélags Islendinga
HÖi hinna mörgu liönu gleðistunda, er
hann veitti okkur, bæði utan og innan síns
eigin heimilis. Oft lagði hann á sig mik-
ið erfiði og ferðaðist langt að, til að veita
okkur stuðning í félagsmálum, en nærvera
hans var okkur ætíð vissa fyrir að störf
okkar bæru góðan árangur. Og sjálfum
mun honum hafa þótt þær stundir ánægju-
fylstar er hann var veitandi í vinahóp hér
í heimabygðinni. Vil eg heimfæra erindi
úr kvæði er hann orti á heimleið frá fs-
landi 1930:
Það er gott að geta átt
gleðistund með vinum sínum,
finna hlýjan hjartaslátt,
hugarboð um frið og sátt;
eg hefi unað á þann hátt
yndælustu stundum mínum.
Það er gott að geta átt
gleðifund með vinum sínum.
Deildin vottar ekkju og öðrum aðstand-
endum hins látna samúð og hluttekningu.
Á þessu síðastliðna ári hafði deildin þrjá
starfsfundi, en þess á milli kom stjórnar-
nefnd deildarinnar saman til skrafs og ráð-
stafana. Fundir 'hafa venjulega verið
fámennir, og er að vísu við því að búast,
þar sem meðlimir eru drefiðir á 20—30
mílna svæði.
Tvær skemtisamkomur voru haldnar
undir umsjón deildarinnar, sú fyrri í júní.
Aðkomumenn á skemtiskrá voru: Séra
Kristinn Ólafsson, séra Guðm. Johnson og
séra Jakob Jónsson. Lá vel á prestunum
og skemtu þeir samkomugestum hið bezta.
Þökkum vér þeim öllum fyrir komuna.
Hið venjulega útimót deildarinnar var
haldið að heimili Stefáns Andersonar; er
hver látinn skemta sér á þeim mótum sem
bezt líkar. Að útbreiðslu eða meðlima-
fjölgun hefir allvel verið unnið, og marg-
ir tekið góðan þátt í því. Þó má sérstak-
lega nefna þá Jón Janusson frá Foam
Lake og Stefán Helgason í Hólarbygð,
sem báðir eru bókaverðir fyrir útibúum
deildarinnar á þeim stöðum, og hafa fjölg-
að þar meðlimum að mun. Þetta s.l. haust
var einnig stofnað útibú af bókum deild-
arinnar í Elfros. Veitir því forstöðu Jón
Guðmundsson kaupm. Er deildin Jóni
þakklát fyrir að veita bókunum viðtöku og
telur þær í góðs manns höndum. Deildin
hefir átt bókaláni að fagna; þetta ár eign-
aðist hún bókasafn til viðbótar, er taldi urn
200 bindi. Tilheyrði það áður Kristnes-
bygð, en hafði ekki verið starfrækt und-
anfarin ár. Var það góðmótlega látið af
hendi við deildina, af þeim mönnum er
síðastir starfræktu safnið. Þakkar deildin
þeim hér með góða samvinnu. Þá hafa all-
margar nýjar bækur bæzt í safnið á þessu
ári og mun nú deildin hafa um 600 bindi
til útláns. Þetta s.l. ár taldi deildin 48
skuldlausa meðlimi, og hefir því meðlimum
fjölgað um 16 á árinu. Má það gott kall-
ast og vel ef sú tala gæti haldist.
Útgjöld deildarinnar á árinu námu
$87.00. Var það $13.56 meira en inntektir
og hefir því saxast á sjóð deildarinnar,
sem nú er aðeins $20.80.
R. Arnason, ritari.
Jón Janusson lagði til og Árni Eggert-
son studdi, að skýrslan sé viðtekin með
þökkum og bókuð. Samþykt.
Til bjóðrœknisfélags Islendinga í Vestur-
heimi frá sambandsdeildinni “Fálkinn”
í febrúar 1936.
Síðan í þinglok 1935 hefir deildin Fálk-
inn starfað á sama sviði og undanfarin ár.
Fyrst skal skýra frá því, að félag vort tók
þátt í samkepni um bikar Þ. í. í V., sem
fór fram í marzmán. 1935 í Selkirk, undir
stjórn milliþinganefndar yðar og þökkum
vér hér með henni, ásamt keppinautum
okkar og sigurvegurum. Þátttakendur voru
þessir hockey-flokkar: Gimli, Árborg, Sel-
kirk -Pla-more og Fálkinn. Gimli flokkur-
inn vann Fálka í úrslitaleiknum og eru því
meistarar sambandsins.
Líkamsæfingum var haldið áfram til 1.
marz 1935 og það stunduðu 40 stúlkur og
30-40 drengir. En þenna vetur hefir
engum æfingutn verið komið við vegna
fjárþrengsla og líka vegna þess, að nú er
ekki lengur hægt að fá til leigu hentugt
hús með viðunandi leiguskilmálum.
Skautasvell, sem bygt var 1934 hefir
reynst ágætlega og er nú félagsskapur-
inn á fótum eingöngu fyrir það. Höfum
við nú um 400 meðlimi samtals, yngri og
eldri deildir. Sama meðlimatala og 1935.
en í þessari félagatölu reiknast 150 ungl-
ingar, sem heyra til atvinnulausu fólki og
veitt hefir verið ókeypis aðgangur að