Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1936, Blaðsíða 158
140
Tímarit Þjóðræknisfélags íslendinga
Var tillagan studd af Dr. R. Beck og
samþykt af þingheimi meS því aö fólk
reis úr sætum. Þakkaöi Á. P. Jóhannsson
þessa viöurkenningu þings meö velvöldum
orðum og skýröi jafnframt frá skipulags-
skrá í sambandi viö veitinguna. Ennfrem-
ur flutti hann þinginu kveðju frá þeim Dr.
og Mrs. Ófeigi Ófeigsson.
Ný mál.
Dr. Rögnvaldur Pétursson mintist á
starf Ófeigs Sigurðssonar í Red Deer í
sambandi við minnisvarða St. G. Stephans-
sonar. Skýrði hann frá þátttöku Þjóð-
ræknisfélagsins í þessu máli og gat þess að
á næsta vori mundi fara fram afhjúpunar-
athöfn, og væri það ósk þeirra er sáu um
verkið að íslendingar hér eystra og Þjóð-
ræknisfélagið tæki þátt í þeirri athöfn.
Mæltist Dr. Pétursson til að forseti biðji
þingið að votta Ófeigi Sigurðssyni þökk
fyrir sitt mikla starf í þessu máli og sé
skrifara falið að tilkynna honum það. Bar
forseti ntólið upp og var það samþykt, með
því að fólk reis úr sætum. Einnig var
samþykt að viðurkenna kveðju Dr. og Mrs.
Ófeigsson með bréfi frá skrifara.
Séra Guðmundur Árnason lagði til og
séra B. Th. Sigurðsson studdi, að stjórn-
arnefndinni sé falið að senda fulltrúa til að
vera við afhjúpunarathöfn minnisvarða
St. G. Stephanssonar. Samþykt.
Alyktan þingnefndar viðvíkjandi tillögu
Gunnlaugs Jóhannssonar.
Þingnefndin, sem skipuð var til þess að
íhuga tillögu hr. Gunnlaugs Jóhannssonar
um það, að Þjóðræknisfélaginu sé falið á
hendur að .kaupa og starfrækja nægilega
stóran skógarlund í nánd við Winnipeg,
nothæfan til íslendingadags hátíðahalda
og annara þjóðlegra samfunda, sér sér ekki
fært að ráðleggja þinginu að gera nokk-
ur ákvæði þar að lútandi, að svo stöddu.
En nefndin leggur til:
1. Að þingið lýsi þvi yfir, að Þjóð-
ræknisfélagið sé hlynt öllum þeim hugsjón-
um, sem leita til samvinnu og eflingar vel-
ferðarmálum íslendinga í Vesturheimi.
2. Að þingið lýsi því yfir í sambandi
við tillögu hr. Gunnlaugs Jóhannssonar, að
Þ jóðræknisfélagið sé fúst til samvinnu við
íslendingadagsnefnd Winnipegbúa, og að
þingið felur því hér með framkvæmdar-
nefndinni málið til meðferðar og samtals,
milli þinga, við þær félagsheildir, sem sýna
áhuga eða mögulegleika hafa til fram-
kvæmda.
Winnipeg 26. febrúar 1936.
S. W. Melsted Friðrik Sveinsson
A. J. Skagfeld Th. S. Thorsteinson
Ingibjörg Goodmundson.
Séra Guðm. Árnason lagði til og Th. S.
Thorsteinsson studdi, að álitið sé viðtekið
eins og lesið. Samþykt.
Friðrik Sveinsson gat þess að væntan-
legur væri hingað í sumar, séra Jón Sveins-
son, bróðir sinn, í fýrirlestrarferð. Óskaði.
hann eftir að Þjóðræknisfélagið vildi
greiða götu hans á einhvern hátt.
Skýrði Dr. Beck frá hinu mikla ritstarfi
séra Jóns Sveinssonar og mælti með að alt
væri gjört fyrir hann er hægt væri.
Tillögu gjörði séra Jakob Jónsson að
þingið feli stjórnarnefndinni að greiða
götu Jóns Sveinssonar eftir mætti, er hann
kemur á komandi sumri. A. J. Skagfeld
studdi tillöguna og var hún samþykt í einu
hljóði.
Bað ritari um leyfi að mega lesa fund-
argjörð eins langt og hún væri komin, því
hann yrði fjarverandi að kveldinu. Var
það leyft og fundargjörð lesin og samþykt.
Ivlukkan 8 var fundur settur. Fóru fyrst
fram skemtanir, en að þeim loknum var
tekið til fundarstarfa.
J. Walter Jóhannsson talaði nokkur orð
um Karlakór Islendinga í Winnipeg, og
það að kórinn hefði ráðist í að syngja
kantötu Jóns Friðfinnssonar.
Dr. Richard Beck lagði til, fyrir hönd
stjórnarnefndar, að skáldið K. N. Júlíus,
sé gjörður heiðursfélagi. B. E. Johnson
studdi, og var það samlþykt í einu hljóði af
þingheimi.
Þakkaði forseti þá fulltrúum, meðlimum
og gestum fyrir starfið á þinginu, og öllum
er sótt höfðu fundi og samkomur þingsins.
Var þá fundarbók lesin og samþykt sam-
kvæmt tillögu frá Dr. Rögnvaldi Pét-
urssyni og Dr. Richard Beck. Sagði for-
seti þá slitið hinu seytjánda ársþingi Þjóð-
ræknisfélags íslendinga í Vesturheimi.
Jón J. Bildfell, forseti.
Bergthor E. Johnson, ritari.