Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1944, Blaðsíða 170
148
TÍMARIT ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGS ÍSLENDINGA
Fyrsti liður samþyktur.
Annar liður sömuleiðis.
Þriðji liður samþyktur.
Fjórði liður samþyktur.
Nefndarálitið í heild samþykt.
Forseti las kveðjur til þingsins frá
Þorsteini ísdal, White Rock, B. C.; Theó-
dóri lyfsala í Park River, N. Dak., og
Sigurði Helgasyni i Bellingham, Wash.,
sem forsetinn þakkaði i nafni þingsins.
Dr. Árni Helgason rœðismaður frá
Chicago var kominn til þings. Bauð for-
seti hann velkominn. Ávarpaði dr. Árni
þingið og flutti því árnaðaróskir frá
sambandsfélaginu “Vísir” i Chicago og
sínar. Skýrði Árni mjög greinilega frá
starfi Vísirs og var ánægjulegt að heyra
og vita hve vel að íslendingar í Chicago
halda í horfinu, og hve tryggir þeir
reynast þjóðræknismálum vorum.
Annar mætur gestur sunnan úr Banda
ríkjunum var einnig kominn til þings-
ins. Það var dr. Edward Thorlakson rit-
ari herupplýsinga skrifstofu Bandarikja-
stjórnar. Forsetinn gjörði og þann góða
gest kunnugann þingheimi. Að kynn-
ingarræðu forseta lokinni ávarpaði dr.
Thorlakson þingið. Kvaðst hann vera
kominn til þings að tilhlutun stjórnar-
deildar þeirrar er hann starfaði fyrir í
Washington. Kvaðst senda fréttir dag-
lega frá gjörðum þingsins til New York
og væri þeim þaðan útvarpað til Is-
lands tafarlaust svo landar vorir á Is-
landi gætu fylgst með því, sem gjörðist
á þjóðræknisþingi voru hér í Winnipeg.
Fyrir slíka rausn og vináttumerki frá
Bandaríkjastjórninni og dr. Thorlakson
stöndum vér Vestur-íslendingar í mikilli
þakklætisskuld.
Dr. Thorlakson flutti og þinginu árn-
aðaróskir frá sjálfum sér og mörgum
fleiri Islendingum þar syðra.
Þingnefndarálitið í samvinnumálinu
við Island tekið til umræðu. Framsögu-
maður, séra V. J. Eylands.
Samvinnumál við tsland
Hjörtu vora allra, sem sitjum hið 25
ársþing Þjóðræknisfélags Islendinga 5
Vesturheimi hrærast til innilegs þakk-
lætis fyrir alla þá samúð og margþátt-
aða stuðning sem þjóðbræður vorir á
Islandi hafa sýnt félagi voru frá önd-
verðu, og einkum fyrir þann drengskap
og rausn sem vér höfum notið af þeirra
hálfu á þessu aldarfjórðungs afmæi'
voru.
1. Vér þökkum Þjóðræknisfélagi Is-
lendinga í Reykjavík, og einstökum
mönnum sem kunna að eiga hlut að
máli fyrir þá alúð og gestrisni sem vest-
ur-íslenskir hermenn sem dvalið hafa,
eða dvelja nú á íslandi, hafa notið >
landi þar. Vér þökkum fyrirgreiðslu
félagsins í sambandi við útbreiðslu og
sölu á Timariti voru á íslandi. Vér
þökkum ennfremur fyrir þá sæmd sem
Þjóðræknisfélag Reykjavíkur hefir sýnt
Vestur-Islendingum, með því að geí0
herbergi í hinum nýja stúdentagarði
sem sérstaklega er ætlað vestur-íslensk-
um námsmönnum, og ber nafnið Nýja
Island.
2. Vér þökkum hinum ýmsu stofnun-
um á Islandi sem sent hafa oss kveðjur
og árnaðaróskir á þessum tímamótum '
sögu vorri, svo sem Þjóðræknisfélagi Is'-
í Reykjavík, Háskóla islands, forsetum
alþingis, Prestafélaginu, Iþróttafélaginu.
Kvenfélögum Reykjavíkur, einnig þökk-
um vér fjölda einkaskeyta, sem birtast
munu í næsta hefti Tímarits vors.
3. Vér þökkum ríkisstjóra islands, h'-
Sveini Björnssyni, fyrir hið faguryrta og
vingjarnlega ávarp er hann sendi oss a
hljómplötu, og flutt var hér á fyrsta
þingdegi; einnig þökkum vér ríkisstjórn-
inni fyrir hið skrautritaða ávarp sem
erindreki hennar bar fram á þessu þing1
voru.
4. En einkum og umfram alt, þökk
um vér ríkisstjórn Islands fyrir Þa *ra
bæru rausn að senda oss biskup lslands>
herra Sigurgeir Sigurðsson, sem fulltrua
sinn á þing vort. Viljum vér lýsa P
yfir að hann hefir verið oss hinn kær
komnasti gestur, að hann hefir me
æfintýralegri för sinni hingað vestun
með glæsilegri persónu sinni, llu
framkomu og heillandi ræðum og erin
um, hrifið hugi vora og yljað oss UI