Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Side 11

Uppeldi og menntun - 01.01.2012, Side 11
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(1) 2012 11 sigríðUr margrét sigUrðardóttir og rúnar sigþórsson sem forystuhæfni skólans eykst en halda jafnframt áfram að vinna á fyrri stigum eftir því sem við á og beita mismunandi stjórnunarstíl eftir þörfum. Í hugmynd Lambert felst að virkni skólastjórans sem forystumanns sé mest í byrjun þegar hann er nokkurs konar einfari á sviði forystu. Eftir því sem forystuhæfni skólans eykst verður forysta annarra meðlima skólasamfélagsins virkari og samhliða getur skólastjórinn dregið úr forystuvirkni sinni. Stig tilsagnar er dæmigert þegar skólastjóri kemur að skóla þar sem samvinnu skortir, skólastarf er ómarkvisst og framfarir takmarkaðar. Skólastjórinn er í hlutverki kennara, ábyrgðarmanns og framkvæmdastjóra. Hann þarf að koma á samvinnu og teymisvinnu, skapa skólasýn og grundvöll fyrir sameiginlegar væntingar, endurskil- greina viðmið og innleiða notkun gagna og athugana í skólastarfinu. Hlutverk skóla- stjóra í þessu ferli er oft þess sem veit best. Hann þarf að krefjast þess að árangur skólans sé markvisst metinn, eiga frumkvæði að samræðum um skólastarfið, leysa erfið vandamál, ögra og setja spurningarmerki við tiltekin viðmið, taka á vanhæfni, koma á verkefnum sem krefjast þátttöku starfsfólks og leiðbeina um nýja kennsluhætti. Ekki síst þarf hann að orða þá stefnu sem að lokum verður hluti af menningu skólans. Á þessu stigi þarf skólastjórinn að hvetja og jafnframt vernda og styðja starfsfólk þannig að sambönd fólks og hlutverk innan stofnunarinnar geti þróast í samræmi við breyttar áherslur í skólastarfinu og nýja þekkingu. Á stigi breytinga er skólastjórinn í hlutverki leiðsögumanns og þjálfara. Hann losar smám saman tökin og gefur frá sér hluta af valdi og stjórn til annarra en þarf jafn- framt að halda áfram að veita stuðning og þjálfun. Kennarar eru í hraðri þróun á þessu tímabili en finna oft fyrir löngun til að hætta við þróunarverkefni þar sem þau virðast of erfið. Hlutverk skólastjórans er að styðja þá með því að halda áfram samræðum, taka þátt í ferlinu, þjálfa starfsfólk og leysa mál sem upp koma. Stig breytinga er þýðingarmikið en tvísýnt tímabil og til að stýra skólasamfélaginu í gegnum það þarf skólastjórinn að hugsa markvisst og skipulega, skilja á hvaða leið menningin er og skynja hvenær tímabært er að draga sig í hlé jafnóðum og kennarar taka meiri forystu. Á stigi mikillar forystuhæfni er skólastjórinn í hlutverki starfsfélaga, gagnrýnins vinar og lærimeistara. öll umgjörð skólans hvetur kennara til að taka að sér forystu- hlutverk. Skólastjórinn dregur sig að miklu leyti í hlé sem forystumaður og einbeitir sér að því að útvega bjargir og koma fram sem samverkamaður frekar en drottnari. Kennarar taka frumkvæði að ýmsum verkefnum og taka ábyrgð. Um leið og kennarar og skólastjóri ná betri tökum á gagnkvæmum samskiptum og samræðu verður jafn- ræði milli þeirra meira og aukinn samhljómur í viðhorfum þeirra og athöfnum. Rödd kennara verður sterkari og áhrif þeirra meiri, sýn þeirra verður skýrari og þeir verða jákvæðari gagnvart endurgjöf annarra í skólasamfélaginu. Skólastjórar þurfa ekki lengur einir að koma á samræðum eða miðla málum, benda á það sem betur má fara eða bjóða viðteknum viðmiðum byrginn heldur deila kennarar og stjórnendur orðið sömu áhyggjum og vinna saman að sameiginlegum markmiðum (Lambert, 2006). Í kenningunni um forystuhæfni skóla er gert ráð fyrir virkri þátttöku alls skólasam- félagsins. Því telur Lambert (2003) að skólastjóri þurfi ekki einungis að vinna á þann hátt sem hér hefur verið lýst með kennurum heldur einnig öðrum hópum skólasam- félagsins: nemendum, foreldrum og öðru starfsfólki.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.