Hugur - 01.01.2008, Page 20

Hugur - 01.01.2008, Page 20
18 Róbert Jack ræðir við Eyjólf Kjalar Emilsson félagið eins og hvaðeina annað. En ég er tortrygginn á heimspekikerfi sem á að innleiða í þjóðfélaginu, slíkt hefur ekki gefist vel. Samanber Fögruborg eða eitthvað slíkt? Fögruborg eða marxismann, nú eða nýfrjálshyggjuna. Þetta var útúrdúr afpvíað við vorum komnir inn íhitt, enpín bók fallar um hugann. Þá veltir maðurpvífyrir sér að nti virðist sem pað sé mjög erfitt að komast í tengsl við hugann eins og Plótínos skilur hann. Segirðufrápví í bókinni hverju Plótínos komst að eftir alla sína heimspekiástundun? Ég er að glíma þarna við ýmsar spurningar. Eitt er að hann segir að frummynd- irnar séu hugsanir hugans innan hugans. Það vekur alls konar spurningar um hvernig þetta sé nákvæmlega hugsað. Hvert er sambandið á milli hugarins og hins hugsaða, innan hugans sjálfs? Annað sem hann segir alloft, orðar á ýmsan hátt og leggur áherslu á, er að þessi hugur hugsi sjálfan sig og hugsun á þessu plani er sjálfshugsun. Hvað þýðir þetta? Það sem ég er kannski hvað ánægðastur með í bókinni er að ég held að ég hafi fundið sitt af hverju nýtt um þetta og því vildi ég gjarnan fá að segja frá. Endilega. Við höfum hið eina, og það er alveg ljóst að Plótínos hugsar sér allt sem kemur á eftir hinu eina sem stigveldi einingar og margbreytni. Það eru allir möguleikar uppfylltir og það finnst ekkert stig margbreytni sem er ekki raungert einhvers staðar í kerfinu. Hið eina er fullkomin eining og það sem kemur næst á eftir því á að hafa næstmestu hugsanlegu einingu til að bera. En margbreytileiki hugans virðist vera tvenns konar: Annars vegar er hugurinn margur vegna þess að þar er greinarmunur súbjekts og objekts, þess sem hugsar og þess sem hugsað er, hins vegar er hann margur vegna þess að það sem hugsað er verður að hafa einhverja innri margbreytni. Ástæðan fyrir þessu síðastnefnda er í raun sú sama og er fyrir því að hið eina verður ekki hugsað, því það sem er alveg án innri greinarmunar verður ekki hugsað. Það sem höndlað verður með hugsun hlýtur að hafa einhvern innri greinarmun eða skil. Geturðu skýrtpetta nánar? Ég held hann sé nú bara að leggja út af því sem honum virðist vera eðli hugsunar. Til að eitthvað geti talist hugsun verður það að greina mun einhvers. ÖU hugtök gera ráð fyrir greinarmun, einhverju sem hugtakið rúmar og einhverju sem það rúmar ekki. I einhverri bíómyndsem ég man eftir að hafa séð var hvítt tómarúm,pað var einfaldlega allt hvítt ogpað var ekkert um pað að segja. En um leið ogpú ert kominn meðpó ekki sé nema lampa og stólpá ertu farinn að geta sagt eitthvað. Já, ég tek einmitt næstum sama dæmi í bókinni. En alltént er það sem skiptir máli
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.