Hugur - 01.01.2008, Page 59

Hugur - 01.01.2008, Page 59
Siðferði, hugsun og ímyndunarafl 57 afls. Til að svara því er rétt að taka eftir að ímyndunarafl er hæfileiki til að fá farlægð á veruleikann með því að hugsa sér hann öðruvísi en hann er. Tilvistar- undrunin byggist einmitt á þessum eiginleika hugans; það er að segja, við gerum okkur ljóst hvað gæti ekki verið. Við höfum þegar séð þessa hlið hugarflugsins í orðum Coleridge. Með því að vekja vitund okkar um andstæðu tilvistarinnar - neindina - hjálpar hugarflugið okkur að sjá það sem er. Dæmi um hugsuð sem leggur þennan mátt ímyndunaraflsins til grundvallar í hugsun sinni er G.K. Chesterton. Að dómi Chestertons, líkt og Coleridge, vaknar sú tegund hugsunar sem mestu skiptir í mannlífinu þegar vitundin um veruna og neindina kaflast á, ef svo má að orði komast: „Uns við gerum okkur ljóst að hlutirnir gætu verið án tilvistar [might not he\ getum við ekki gert okkur tilvist þeirra ljósa“.21 Með öðrum orðum, til að maður sjái þá einföldu hluti sem fyrir framan hann eru, segir Chesterton, verður hann að teygja á hugarfluginu, ef svo má segja, svo hann geti séð þá móti vissum bakgrunni.22 Bakgrunnurinn sem Chesterton hefur í huga er einmitt sú staðreynd að hlutirnir eru til fremur en ekki, og að þegar allt kemur til alls vitum við ekki hvers vegna þeir eru eða hvers vegna þeir eru eins og þeir eru. Því er hver hlutur og hver manneskja best séð eins og þeim hafi rétt í þessu verið bjargað frá glötun í einum aflsherjar skipsskaða, hvert og eitt þeirra er eitt stórt Hefði-Getað-Ekki-Verið-Til. Chesterton orðar þessa hugsun meðal annars með því að vísa í bók Daniels Defoe um Róbinson Krúsó: Krúsó er maður á litlum kletti með dálítið góss sem hann hefúr bjargað með naumindum úr klóm Ægis: það besta í bókinni er einföld skrá yfir það sem bjargaðist úr flakinu. Mesta ljóðið er vörulisti. Hvert eldhúsáhald verður ímynd hins fúllkomna vegna þess að Krúsó hefði geta misst það í sjóinn. Það er góð æfing þegar manni leiðist að virða fyrir sér hvaðeina, kolaskófluna og bókaskápinn, og hugsa með sér hve ánægður maður gæti verið að bjarga því úr sökkvandi skipi upp á eyðilega eyju. En það er enn betri æfing að muna hvernig allir hlutir hafa bjargast svo naumlega: öllu hefur verið bjargað úr flaki.23 Chesterton vill hjálpa lesenda sínum að sjá og meta staðreyndir og hann gerir það rneð því að undirstrika „dökkan bakgrunn" þeirra, leyndardóminn sem umvefúr þ®r. Staðreyndir eru ráðgáta, hlutirnir spretta úr og eru óaðskiljanlegur hluti af Hyndardómi tilverunnar. Að sjá hversdagslegar staðreyndir þessa heims sem 21 G.K. Chesterton, Heretics, New York: John Lane 1919, s. 36. 22 Sjá grein Chesterton, „A Simple Thought", í Ihe Thing, rafræn útgáfa, http://www.cse.dmu. ac.uk/~mward/gkc/books/The_Thing.txt. 23 G.K. Chesterton, Orthodoxy, London: Hodder & Stoughton 1999, s. 88. Nefna má tvær kvikmyndir sem dæmi um æfingu af svipuðu tagi og Chesterton talar um hér. Annars vegar It's a Wonderful Life í leikstjórn Frank Capra og hins vegar Cast Away í leikstjórn Roberts Zemeckis.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.