Hugur - 01.01.2008, Side 60

Hugur - 01.01.2008, Side 60
58 Jón A. Kalmansson leyndardómsfullar er í raun eðlilegur fylgifiskur þess að hugsa um þær, gera sér þær fyllilega ljósar í vitundinni.24 Eða eins og William James orðar þá hugsun: Maður þarf aðeins að loka sig inni í herbergi og taka að hugsa um þá staðreynd að maður er þar, um undarlega lögun líkama síns í myrkrinu [...] stórfurðulegan persónuleika sinn og hvaðeina til að undrunin leggist yfir einstök atriði jafnt sem almennar staðreyndir verunnar, og maður sjái að það er aðeins kunnugleiki sem slævir hana. Ekki aðeins að eitthvað skuli vera, heldur að pessi tiltekni hlutur skuli vera er leyndardómur! Heimspekin starir, en hefur enga röklega lausn, því frá engu til verunnar er engin rökleg brú.2S Hugsun hefst þegar heimurinn og tilvist manna í honum opinberast huganum sem fullkomin ráðgáta og leyndardómur. A þessu byggist hæfileiki hugans til að sjá hið óvenjulega í hinu hversdagslega. Allt sem hugsunin snertir eftir að slík undrun kviknar hlýtur að taka lit af því upphafi. Líf hins hugsandi manns verður aldrei samt eftir það. Því þótt hugarflugið geti búið til alls konar kynleg fyrirbrigði í huganum, er máttur þess hverfandi miðað við veruleikann sjálfan. Imyndunar- aflið rís því aldrei hærra en þegar við gerum okkur í hugarlund það sem er. Þess vegna, segir Chesterton, hafa börn heldur enga þörf fyrir ævintýri þegar þau eru mjög ung. Það dugar að segja þeim raunsæjar sögur af raunverulegu fólki og at- burðum, vegna þess að í augum barnsins gæti ekkert verið makalausara en raun- veruleikinn. Það er af þessari frumundrun barnsins gagnvart veruleikanum sem ævintýri þiggja mátt sinn og aðdráttarafl fyrir menn. Og sú hugsun og tilfinning að veruleikinn sé heilög sköpun, skapaður af óendanlega máttugri, guðlegri veru, væri ekki möguleg nema vegna þess að veruleikinn getur skyndilega birst hugan- um sem stórfengleg ráðgáta og opinberun. Hugmyndir fólks um tilvist og eðli hins æðsta og ósýnilega veruleika, Guðs, nærast af þeim eiginleika mannskepn- unnar að geta bókstaflega sundlað frammi fyrir mikilfengleik og leyndardómi þess veruleika sem hún kynnist í reynslu sinni og hugsun. Ef undrunin er eins þýðingarmikil og ég hef haldið fram, hvers vegna lifum við þá flest eins og veruleikinn sé sjálfsagður og ekkert til að vera uppnæmur yfir? Án efa eru ástæðurnar margar en hér verður látið nægja að nefna þrjár. Fyrsta ástæðan er sú sem James nefnir í tilvitnaðri klausu: kunnugleiki og vani. Vafalaust á sá hæfileiki okkar að geta vanist fljótt því sem er í umhverfinu sér góðar og gildar þróunarlegar skýringar. Við erum praktískar verur sem láta lífsbaráttuna ganga 24 I bók um Zen-búddisma eftir D.T. Suzuki má lesa þessi orð: „[Zen] er dulrænt í þcim skiln- ingi að sólin skín, að blómin blómstra, að ég heyri í þessari andrá einhvern slá trommu úti á götu. Ef þetta eru leyndardómsfullar staðreyndir þá er Zen fullt af þeim [...] Því Zen birtist í óáhugaverðasta og tilbreytingasnauðasta lífi venjulegs manns á götunni, mcð því að bera kennsl á hvað það er að lifa mitt í lífinu eins og því er lifað. Zen þjálfar hugann skipulega til að sjá þetta; það opnar augu manns fyrir hinum mesta leyndardómi eins og honum vindur fram hvern dag og hverja stund [...] það lætur okkur lifa í heiminum eins og við gengjum um í aldingarðinum Eden [...]“ D.T. Suzuki, An Introduction to Zen Buddhism, New York: Grove Press 1964, s. 45. 25 William James, Some Problems of Philosophy, s. 1002-1003.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.