Hugur - 01.01.2008, Side 126

Hugur - 01.01.2008, Side 126
124 Kristján Kristjánsson II. Kristalssjálfið Bók Kenneths J. Gergen, Ihe Saturated Self{ 1991), er hin elsta þeirra þriggja sem hér verða ræddar og jafnframt sú róttækasta. Gergen býður upp á alþýðlega en umfangsmikla „afbyggingu" á módernískum hugmyndum um sjálfið. Hann tekur í raun upp hinn sögulega þráð þar sem Charles Taylor skildi við hann í margfrægri bók sinni Sources of the Self{ 1989) - þótt nafn Taylors komi ekki fyrir í heimildaskrá - og spinnur hann áfram í átt til samtíðarinnar. Niðurstaða Gergens er sú að hafna beri móderníska sjálfinu en laga sig í staðinn að hugmyndum um póstmódernískt sjálf. Hann hefur skrifað fleiri rit og ritstýrt öðrum um sjálf og sjálfshvörf á póst- módernískum tímum. (a) Fræðilegarforsendur. Aðferðafræði Gergens byggist á verufræðilegri and- hluthyggju og þekkingarfræðilegri afstæðishyggju. Þessar „hyggjur" þarf ekki að kynna í smáatriðum fyrir lesendum Hugar, ávæningssaga dugar: Það er ekki til neinn hlutveruleiki sem við getum fangað. Fólk skynjar umheiminn og tekur hug- artökum frá ólíkum samræðubundnum sjónarhornum; engir sammannlegir mæli- kvarðar eru til. Sjónarhornin ráðast af valdsafstöðu sjáendanna - í anda greiningar Foucaults — og leiða af sér ósammælanlega „sannleikssiði". Einn helsti dreki hins forna og úrelta módernisma sem Gergen ræðst til atlögu við er hugmyndin um afmarkað, stöðugt, sjálfu sér samkvæmt, skynsamt og trútt sjálf. Það er ekki til neinn hlutbundinn sannleikur um einstaklinga sem unnt er að leiða í ljós með því að rýna í innsta eðli þeirra. Hugtök á borð við „sjálfsfirringu“, „sjálfsblekkingu", „sjálfskreppu" og „sjálfsþekkingu" tilheyra afvegaleiddum módernisma og ber að leggja til hliðar (Gergen, 1991, s. 13,187). Móderníska táknmyndin um einstalding- inn sem „fer að heiman" á unglingsárum til að „finna sjálfan sig“ og berst síðan stöðugt við sjálfsfirringu (Taylor, 1989) gerir ráð fyrir tilvist alvörusjálfs sem ein- staklingurinn getur týnt og fiindið aftur í stíl syndafalls og endurlausnar. En Ger- gen hamrar stöðugt á því að ekkert slíkt sjálf sé til. (b) Sjá/fskenning. Sé goðsögnin um hið sanna sjálf lögð fyrir róða, hvað kemur þá í hennar stað? Gergen segir okkur sögu af koðnun módernísku sjálfshug- myndarinnar og upprisu hinnar póstmódernísku. I síð-módernismanum belgdist sjálfið út af nýjum vaxtarvonum og möguleikum uns það sprakk. Lífið varð kram- búð þroskakosta. Þetta leiddi af sér það sem Gergen kallar „fjölvæðingu sjálfsins“: aðlögun þess að margvíslegum birtingarformum, sem skarast á ýmsa vegu, og tilurð brota-sjálfa. Sjálf urðu samlíki hvert annars eða stálu brotum hvert frá öðru. Svo að reynt sé að fylgja Gergen eftir þá nefnir hann síðari stig þessa ferlis „fjölrænu": splundrun einstaldingssjálfsins í ólíkar og oft innbyrðis ósamkvæmar sjálfs-skuldbindingar. En þessi stig leikræns, kaldhæðins og ógagnrýnins póst- módernisma eru ekki endimörkin í þróun hins póstmóderníska sjálfs. Nú hefiir tekið við lokastigið: gagnrýninn póstmódernismi félagslegra samskipta og virkrar samveru sjálfa þar sem við veljum okkur nærhóp tímabundið og lögum okkur að honum (Gergen, 1991, s. 49, 69, 71, 73,147,156; sjá einnig Kristján Kristjánsson, 2002, s. 189-190).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.