Hugur - 01.01.2008, Side 132

Hugur - 01.01.2008, Side 132
130 Kristján Kristjánsson (a) Fræöilegarforsendur. Swann sækir aðferðafræði sína í smiðju ýmissa höfiinda og kenninga. Ein þeirra er eignunarkenningin sem Dweck aðhyllist. Swann telur þó nokkuð á vanta að sú kenning geri grein fyrir hvers vegna fólk breyti í ljósi þeirra eiginleika sem það eignar sjálfu sér og skýringa sem það trúir um eigin aðstæður; hann skýrir það með sterkri þrá fólks eftir hinu skýranlega og fynrsjá- anlega í lífinu. Þar dregur hann dám af hugmyndum sálfræðingsins Prescotts Lecky um sjálfssamræmi sem forsendu sjálfsskilnings. Swann nefnir einnig sál- fræðingana Mead (táknræna samskiptakenningin) og Heider (jafnvægiskenning- in) sem andlega lærifeður þótt hann segist ganga lengra en þeir (2005). Að lokum vitnar hann með velþóknun í hugmyndir sálgreinisins Harrys Stacks SuUivan um sjálfsstöðugleika (1996, s. 31). Ur þessum sambræðslupotti hugmynda eru fræði Swanns runnin. (b) Sjálfskenning. Swann hefur gert fjölda rannsókna sem leiða í ljós að fólk sækist eftir tilteknum viðbrögðum og endurgjöf annarra. Svo undarlegt sem slíkt má virðast er það endurgjöf sem styrkir þá sjálfshugmynd sem fólkið hefur, hvort sem sú hugmynd er neikvæð eða jákvæð. Þetta stangast á við þá áleitnu skoðun að fólk sé upp til hópa hrósfíklar og gullhamragrafarar: leiti með logandi ljósi að viðbrögðum sem bæti sjálfsmynd þess. Þvert á móti kemur í ljós að fólk sem hefur verulega neikvæða hugmynd um sjálft sig sækist eftir því að styrkja þá hugmynd í sessi, jafnvel þótt slíku fylgi sálarangist. Með öðrum orðum: Við leitum þeirra sem sjá okkur í sama ljósi og við sjáum okkur sjálf og við flýjum þá sem sjá okkur öðruvísi. Swann nefnir þetta „sjálfsgildrur“ er iðulega varni bættu sjálfsáliti vegar. Hann neitar því ekki að við sækjumst líka eftir hrósi, en fullyrðir að fólk með neikvæðar sjálfshugmyndir eigi í innri togstreitu - það óski á sama tíma eftir lofi og lasti - og lendi því í djúpri sjálfsgildru. Hvötin að baki því að vilja fá stað- festingu á eigin sjálfsmati er að sögn Swanns þörfin fyrir stöðugleika og sjálfs- skilning: þörfin fyrir jafnvægissjálf. Sé hróflað við djúprættustu sjálfshugmyndum okkar finnst okkur eins og verið sé að hrinda okkur inn í nýja ógnvekjandi veröld; við upplifum sams konar kennd og blindingjar sem skyndilega fá sjónina á full- orðinsaldri og þola ekki ofbirtuna í augun (Swann, 1996, s. 10-14,23-25,51; Swann, 2005). Kenning Swanns reynist mikið þarfaþing við að skýra ýmis undarleg fyrirbæri svo sem hvers vegna þolendur eineltis sækjast oft eftir félagsskap dólganna sem ofsækja þá og hvers vegna konur sem orðið hafa fyrir barðinu á ofbeldisfullum eiginmönnum hlaupa einatt í fangið á þeim næsta sem þær sjá. Margar af rann- sóknum Swanns snúast um ástarsambönd. Þær sýna að einstaklingar með jákvæðar sjálfshugmyndir sækjast eftir sambandi við þá sem virða þá mikils en þeir sem burðast með neikvæðar sjálfshugmyndir verða nákomnastir þeim sem virða þá lítils (1996, kaflar 4-5). Kúvending sjálfsins - eða það sem ég hef kallað „sjálfs- hvörf' - er samkvæmt Swann sársaukafullt og torsótt ferfi. Maður getur jafnvel spurt sig í örvæntingu hvort það sé yfirhöfuð mögulegt. (c) Menntunarfræðilegar ályktanir. Hvernig er unnt að losa fólk úr sjálfsgildrum? Besta leiðin er að dómi Swanns að byrgja brunninn áður en barnið dettur í, það er að segja að koma í veg fyrir að börn ali með sér neikvæðar sjálfshugmyndir í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.