Hugur - 01.01.2008, Page 141

Hugur - 01.01.2008, Page 141
Hugsað með Ólafi Páli 139 og við þurfum svo sárlega á að halda eigi okkur að takast að ráða farsællega fram úr viðfangsefnum samtímans. Hér er það sem núverandi venjur okkar og afstaða til lýðræðisins, og til margra annarra hluta, getur beinlínis staðið lýðræðishugsjón- inni fyrir þrifum, og gert okkur erfiðara að ráða skynsamlega fram úr brýnum úrlausnarefnum. Olafur bendir á margt sem getur grafið undan framkvæmd lýð- ræðis, ekki síst ríkjandi hugmynd um lýðræði sem hann kennir við prútt. I prútt- lýðræði reyna borgararnir sífellt „að gera verðgildi eigin hagsmuna sem mest en andstæðra hagsmuna sem minnst“ (123), og þeir hneigjast til þess að ganga „að óskum borgaranna sem gefnum og [sjá] hið lýðræðislega ferli sem tæki til að telja þessar óskir saman“ (128). Einn vandinn hér er sá að óskir okkar borgaranna, ekki síst þær sem hafa afleiðingar fyrir umhverfið, eru iðulega vanhugsaðar og yfir- borðskenndar og taka lítið tillit til margra þeirra verðmæta sem verðskulda virð- ingu, gilda á borð við réttlæti, sjálfbærni og hag komandi kynslóða. Ólafur dregur enga dul á að hann áh'tur skilning margra Islendinga á lýðræði, ekki síst þeirra sem fara með völdin, rista heldur grunnt. I framkvæmd lýðræðisins hér á landi sé lögð áhersla á að formleg skilyrði séu uppfyllt, en jafnframt sé oft litið á þau öðru frem- ur sem ytri skorður: Samkvæmt prúttlýðræðinu eru ýmis lögbundin ferli, t.d. lögbundið um- hverfismat og meðferð athugasemda við slíkt mat, ytri skorður sem tak- marka þá valkosti sem koma til lýðræðislegrar ákvörðunar (kosninga á Alþingi). Ekki er litið á ferlin sjálf sem mikilsverðan hluta lýðræðislegs ákvörðunarferlis (133). Af þessum sökum sé lítt hirt um að taka tillit til þeirra sjónarmiða sem fram koma við undirbúning ákvarðana og láta efni og vægi þeirra skoðana sem færðar eru fram móta niðurstöðuna. Gegn prúttlýðræðinu teflir Ólafur Páll fram hugmynd- inni um rökræðulýðræði sem „gengur ekki að því sem gefnu að borgararnir hafi skýra hugmynd um hvað séu gæði eða hagsmunir þeirra" heldur „lítur á hið lýð- ræðislega ferli sem mikilvægan þátt í að móta hugmyndir um gæði og hagsmuni" (126). Ólafur álítur að þessi hugmynd um lýðræði eigi svör við ýmsum erfiðum spurningum sem vakna nú á dögum um lýðræðið, meðal annars um það hvort ekki skapist djúpstæð togstreita milli nauðsynlegrar aðildar sérfræðinga að ákvörðun- um annars vegar og vilja kjörinna fulltrúa hins vegar, átök milli hagsmuna sem varða nálæga og áþreifanlega hluti annars vegar og hagsmuni sem varða fjarlæga og óræðari hluti eins og heill komandi kynslóða hins vegar, og síðast en ekki síst togstreita vegna þess að yfirþjóðlegar stofnanir þurfa nauðsynlega að fá meiri völd en áður til að takast á við hnattræn vandamál. Ekki skal ég leggja mat á það hér hvort rökræðulýðræðið á öll þau svör sem Ólafur telur það hafa, en mér virðast hugmyndir hans um betra, efnislegra og réttlátara lýðræði vera um margt skyn- samlegar. Vandinn er að koma þeim í framkvæmd. Og þá er ég kominn að bak- grunni flestra þeirra viðfangsefna sem Ólafur Páll ræðir um í bók sinni. Sá bak- grunnur er sú lífsafstaða, þeir lífshættir, sú tækni og sú samfélagsgerð, í einu orði sagt sú rökvísi, sem hefur fest sig í sessi á undanförnum áratugum og öldum á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.