Hugur - 01.01.2008, Side 162

Hugur - 01.01.2008, Side 162
160 Hjörleifur Finnsson og Davtð Kristinsson Gú/ag-eyjak/asi Solsénítsíns steyptist yfir Frakka eins og opinberun árið 1975, eins og tíðindi um eitthvað alveg nýtt og áður óþekkt, og höfðu þó allar helstu upplýsingar um þrælabúðir Stalíns þegar verið komnar fram í kringum 1950 og studdar ítarlegum vitnisburði? Þetta stafaði af því að árið 1950 var tískan ný af nálinni og menn því algerlega ófærir um að sjá nokkur rök gegn henni, hversu augljós sem þau voru, en árið 1975 var tískan búin að renna sitt skeið á enda, tími kúvendingarinnar kominn. (ioí) Sjálfsblekking marxista varðandi Sovétríkin er feikilega áhugavert fyrirbæri sem hefur verið margrannsakað, eins og Einar Már bendir sjálfur á. En hvað hefur þetta með tískutildur að gera? Hvers vegna vildi Sartre ekki gagnrýna þrælk- unarbúðirnar opinberlega þótt hann hefði vitað af þeim í meira en áratug? Vegna þess að hann var þræll tískunnar? I raun var ástæða þess að Sartre vildi ekki gagn- rýna sovéska kommúnismann sú að hann áleit það vera vatn á myllu andstæðings- ins, borgaralegra dagblaða sem styddu arðrán kapítalismans. Hins vegar voru menntamanna-marxistar á borð við Claude Lefort og Cornelius Castoriadis snemma mun gagnrýnni í garð stalínismans en Sartre.47 Trúfesta Sartres verður ekki skýrð með tískutildri sem sé í grunninn sama eðlis og nafnatískan sem krafð- ist þess að drengir væru skírðir Marc frekar en Marcel.48 Franski kommúnista- flokkurinn naut ekki aðeins stuðnings menntamanna-marxista heldur var hann stærsti flokkurinn á eftirstríðsárunum, hann hlaut yfir fjórðung atkvæða í kosn- ingunum haustið 1945 og taldi sig hafa tæplega milljón meðlimi tveimur árum síðar. Þessa hylli hans má meðal annar skýra með dyggri framgöngu flokksmanna í andspyrnuhreyfingunni og vonbrigðum og sektarkennd Frakka vegna samvinnu borgarastéttarinnar við nasista undir Vichy-stjórninni sem ýtti undir þá tilhneig- ingu að horfa til austurs. En allt hefiir þetta lítið með tísku að gera. Tískufræðilegar greiningar Einars Más á rétttrúnaðarmarxisma og öðrum and- ans kenningum verða að teljast yfirborðslegar í samanburði við þá fræðimenn sem hafa, eins og getið er í Bréfi til Maríu, borið þennan rétttrúnað saman við átök innan kirkjunnar. Eitt af mörgu sem hverfur nánast alfarið í þeirri tilhneigingu Einars Más að gera ólíkar hugmyndastefnur að sápuóperum er valdabaráttan sem einkennir slík hugmyndafræðileg átök. I framhjáhlaupi viðurkennir höfundurinn að ein þessara hugmyndastefna var í reynd annað og meira en það löður sem þær verða í endursögn hans: Því má ekki gleyma að menn vildu á sínum tíma afgreiða existentíalism- ann með því að hann væri ekki annað en „frönsk tískustefna" og því að engu hafandi. En þessar mótbárur eru rangar. Existentíalisminn var merkileg stefna í heimspeki og bókmenntum út af fyrir sig, og svo var 47 Sjá til dæmis Raf Geenens, „,When I Was Young and Politically Engaged ...‘ Lefort on the Problem of Political Commitment“, Thesis Eteven 87 (nóv. 2006), s. 19-32. 48 Einar Már leggur fræðitískur ekki alfarið að jöfnu við nafnatískur. Þær fyrrnefndu eru „mun víðtækari tískufyrirbæri“ (84) en í grunninn virðast þær þó svipaðar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.