Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 24
á þessum árum, en þeir voru áhugasamir og stofnuðu fyrstu sérdeildina innan
Verkfræðingafélagsins. Á fyrsta aðalfundi deildarinnar var fyrsta mál á dagskrá fund-
arins stofnun orðanefndar, sem sýnir best hug rafmagnsverkfræðinga tii íslenskrar
tungu. Sú orðanefnd var beinn arftaki Orðanefndar Verkfræðingafélagsins, sem starfaði
á árunum 1919 til 1927 og svo enn á árinu 1933, þegar hún fjallaði um íðorð Reglugerðar
um raforkuvirki, sem Rafmagnseftirlit ríkisins samdi og starfað var eftir.
Orðanefndin heldur yfirleitt vikulega fundi nema þegar lögskipaðir hátíðadagar og frí-
dagar falla á fimmtudaga. Sumarleyfi nefndarmanna hefur líka áhrif á árlegan fundafjölda,
sem á liðnu ári var 28. Um áramótin 2009/2010 hafði ORVFÍ þar með komið saman á 1199
fundum frá árinu 1971, þegar fyrst var farið að færa fundargerðir reglulega. Að meðaltali
hefur 31 fundur (30,7) verið haldinn árlega í 39 ár. Flestir fundir voru árin 1983/1984 og
1998/1999, 43 fundir hvort starfsár.
Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga var óbreytt á árinu 2009 frá árinu á undan og skipuð
eftirtöldum mönnum: Bergur Jónsson formaður, Gunnar Ámundason, Gústav Arnar, Ivar
Þorsteinsson, Jón Þóroddur Jónsson, Sigurður Briem, Sæmundur Óskarsson, Þorvarður
Jónsson og Hreinn Jónasson rafmagnstæknifræðingur. Jóhannes Bjarni Sigtryggsson, MA
í íslenskri málfræði, starfar með nefndinni sem sérfræðingur og ráðgjafi um íslenskt mál.
Bergur Jónsson, formaður ORVFÍ
Bækur Orðanefndar RVFÍ
Orðasafn II
Rafmagnsfræði. Danskt-íslenzkt bráðabirgðaorðasafn. Prentað sem handrit. Reykjavík 1952.
Raftækni- og ljósorðasafn. Menningarsjóður, Reykjavík 1965.
Raftækni- og ljósorðasafn, 2. bindi. Menningarsjóður, Reykjavík 1973.
Raftækniorðasafn 1. Þráðlaus fjarskipti. Menningarsjóður, Reykjavík 1988.
Raftækniorðasafn 2. Ritsími og talsími. Menningarsjóður, Reykjavík 1989
Raftækniorðasafn 3. Vinnsla, flutningur og dreifing raforku. Menningarsjóður,
Reykjavík 1990.
Raftækniorðasafn 4. Rafeindalampar og aflrafeindatækni. Menningarsjóður, Reykjavík 1991.
Raftækniorðasafn 5. Rofbúnaður, stýribúnaður og vernd raforkukerfa. Orðanefnd
RVFÍ, Reykjavík 1995.
íslenskt-enskt, enskt-íslenskt raftækniorðasafn. Orðanefnd RVFÍ, Reykjavík 1997.
Raftækniorðasafn 6. Mælitækni, mælispennar og gjaldskrár raforku. Orðanefnd RVFÍ,
Reykjavík 1998.
Raftækniorðasafn 7. Strengir, línur, einangrarar og orkumál. Orðanefnd RVFÍ,
Reykjavík 2000.
Raftækniorðasafn 8. Rafvélar, aflspennar, spanöld og aflþéttar. Orðanefnd RVFÍ,
Reykjavík 2001
Raftækniorðasafn 9. Ljóstækni. Orðanefnd RVFÍ, Reykjavík 2001.
Raftækniorðasafn 10. Sjálfvirk stýring og fjarstýring. Orðanefnd RVFÍ, Reykjavík 2002.
Raftækniorðasafn 11. Fjarskiptanet, skiptitækni og merkjagjöf. Orðanefnd RVFÍ,
Reykjavík 2003.
Raftækniorðasafn 12. Ljósleiðara- og geimfjarskipti. Orðanefnd RVFÍ, Reykjavík 2004.
Raftækniorðasafn 13. Loftnet og bylgjuútbreiðsla. Orðanefnd RVFÍ, Reykjavík 2008.
2 2
Arbók VFl/TFl 2010