Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 313
Fláskarðskrika og á Sandhala eru
víðáttumikil í samanburði við
svæðin í Kollafirði. Efnistaka fer hér
fram á 23-40 m sjávardýpi, en til
samanburðar er hún í langflestum
tilvikum á innan við 20 m dýpi í
Kollafirði. Á svæðunum við Syðra-
Hraun eru ekki eiginlegar gryfjur,
því hér er í öllum tilfellum dælt af
yfirborði, þ.e. dælurörið er dregið
eftir sjávarbotninum. Fyrir utan
skeljasandinn sem tekinn er í Flá-
skarðskrika er efnið á svæðinu fín-
korna sandur og möl, en mjög
blandað skeljabrotum. Efnið er mest
notað í fyllingar þar sem minni kröfur
eru gerðar til stæðni og burðarhæfni
efnisins, s.s. í undirfyllingar við
gatna- og hafnagerð og í landfyll-
ingar. Efnið hefur einnig lítillega
verið notað í lagnasand, til golfvalla-
gerðar og í strandblakvelli.
Efnistökusvæði
við Syðra-Hraun 2005
■ í notkun
a''
Syðra-Hraun ólasta"ur
^^indhali
Kjalarnes
Kollafjörður
Seltjarnarnes
\ *
tN J -
Fláskarðskriki
m
r/o,
Álftanes
12. mynd. Efnistökusvæði við Syðra-Hraun í Faxaflóa árið 2005. Byggt á korti á bls. 17 i mats-
skýrslunni: Efnistaka af hafsbotni í sunnanverðum Faxaflóa: mat á umhverfisáhrifum.
Melakriki er efnistökusvæði á 30-40
m sjávardýpi austnorðaustan Syðra-
Hrauns. Efnistaka af hafsbotni utan hafna við ísland hófst að öllum líkindum í Melakrika
með tilraunadælingu á skeljasandi vorið 1953 eins og lýst var hér að framan. Efnis-
tökusvæðið var um 34 ha að stærð árið 2005 og til samanburðar var það jafnstórt og syðra
Engeyjarsvæðið í Kollafirði, sem er annað stærsta svæðið þar. Auk skeljasandsins, er efni
í Melakrika mest notað í fyllingar og þá sérstaklega í stærri landfyllingar, ásamt efni á
Sandhala. Efni var ekki tekið í Melakrika á árunum 1991-1996 og 1999-2009, ef frá er talið
árið 2004 þegar teknir voru um 25.000 m3. Ólastaður er efnistökusvæði á 23-25 m sjávar-
dýpi austan Syðra-Hrauns. Efnistökusvæðið var 31 ha að stærð árið 2005, eða aðeins
minna en svæðið í Melakrika. Efnið er mest notað í fyllingar, en þarna er hugsanlega
steypuefni. Efni var ekki tekið á Ólastað á árunum 1991-1996 og 1999-2004, en 26.500 m3
voru teknir þar á árunum 2005-2009. Sandhali er efnistökusvæði á 24-33 m sjávardýpi
austan Syðra-Hrauns, en mun austar en Ólastaður
(12. mynd). Efnistökusvæðið var orðið mjög stórt
árið 2005, eða um 283 ha að stærð, en til saman-
burðar er Kiðafell, stærsta svæðið í Hvalfirði, um
100 ha. Efni á Sandhala hefur mest verið notað í
fyllingar og þá sérstaklega í stærri landfyllingar,
ásamt efni í Melakrika. Á árunum 1991-1996 og
1999-2009 voru teknir um 745.000 m3 á Sandhala. 1
kjölfar álits Skipulagsstofnunar í apríl 2009 um mat
á umhverfisáhrifum efnistökunnar á svæðunum
við Syðra-Hraun, sótti Björgun um leyfi til efnis-
töku í Fláskarðskrika, Ólastað og Sandhala. í leyfi
sem Orkustofnun veitti Björgun í júní 2009 til tíu
ára, var leyft að taka allt að 1.500.000 m3 í
Fláskarðskrika, allt að 1.000.000 m3 á Ólastað og allt
að 4.000.000 m3 á Sandhala (14. mynd).
Á 13. mynd má sjá magn malar og sands sem dælt
var upp í Hvalfirði, Kollafirði og við Syðra-Hraun á
Tækni- og vísindagreinar |311