Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 245
Athuganir og greiningar
Stöðugleiki lofts og hitahvörf
Mynd 2 sýnir hvernig lofthiti breytist með hæð yfir
jörðu á Keflavíkurflugvelli á hádegi á athugunar-
dögunum fimm. Lofthiti fellur í öllum tilfellum
hægar en óverminn hitafallandi (e. dry adiabatic
lapse rate) 1°C/100 m (sýnd sem brotalína á
mynd 2) sem gefur til kynna að loftið sé örlítið
stöðugt í uppheimum ofan jaðarlagsins (stöðug-
leikaflokkur E í Turner, 1994). Mynd 2 gefur einnig
tíl kynna þykkt jaðarlags lofthjúps, sem afmarkast
af hitahvörfum þar sem lofthiti hækkar staðbundið
með hæð yfir sjávarmáli (sjá rauða hringi á mynd 2).
Þessi hitahvörf eru í < ~1 km hæð á öllum athug-
Unardögum nema 17. apríl, þar sem þau eru í 2 km
hæð. Þar sem hæð gígsins í Eyjafjallajökli er um
1600 m.y.s. hefur þar með gosmökkurinn oftast
borist beint upp í veðrahvolfið þar sem upp-
streymis- og núningsáhrifa frá jörðu gætir síður.
Lóðrétt dreifing gosmakkar
Mynd 3 sýnir safn af Ijósmyndum af upprisi og lóðréttri dreifingu gosstróks frá Eyja-
fjallajökli athugunardagana fimm. Á öllum dögunum nema einum rís mökkurinn, skilur
sig frá jörðu og sveigist upp á við uns hann nær sinni jafnvægishæð. Þetta er klassísk
//bent over plume" sem gefur til kynna að mökkurinn sé veikur (Sparks o.fl., 1997, bls. 288),
þ e. uppdrif er lágt miðað við láréttan vind í raunhæð stróks, sem er metinn í kringum
15 m/s flest alla athugunardagana, sbr. töflu 1. Mælingar nær jörðu gefa til kynna að
Mndhraði og stefna voru stöðug þessa fimm daga.
Tafla 1. Efri mörk gosmakkar,vlndhraði og stöðugleikastuðull I hæð gosmakkar
Efri mörk stróks (km) Vindhraði l/H4 Stöðugleikastuðull S5
Öags. Tilkynning1 Radar2 (m/s) (1/s2)
'7.apr ~23 10 0,0007
'7.apr ~5 5,1 12 0,0003
4.ma[ 5-6 5,3 15 0,0002
7.mal 7-7,6 5,3 15 0,0002
8-maf 4,5-6 5,1 15 0,0002
'O.mal ~5 4,1 12 0,0003
1 Jarðvfsindastofnun Háskólans og Veðurstofa (slands (2010)
2 Veðurstofa Islands (2010)
Mörk neðri stróks út frá Ijósmyndum, sbr. mynd 3a
University of Wyoming (2010) I hæð greindri af radar mínus 500 m
Metinn frá hæð gosstöðvar að ytri mörkum stróks frá mynd 2 og jöfnu 4
Radarmælingar í töflu 1 staðsetja efri mörk stróksins í kringum 5 km hæð alla dagana
nema þann síðasta þar sem hann er í 4 km hæð. Radarmælingum ber ágætlega saman við
daglegar samantektir byggðar á flugi, en þó ekki fullkomlega. Sér í lagi staðsetja
Ritrýndar vísindagreinar i243