Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 102
Þúsundaldarnámskeið
Á leiðtogaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (Sþ) árið 2002 í Jóhannesarborg var tilkynnt að
framlag Islands til Þúsaldarmarkmiða Sþ yrði árleg jarðhitanámskeið í þróunar-
Kindunum sem JHS mun stýra. Á ráðstefnu í Bonn 2004 var greint nánar frá fyrirkomu-
laginu. Þessi námskeið hófust 2005 í Kenýa fyrir Austur-Afríkulönd, árið 2006 í E1
Salvador fyrir Mið-Ameríkulönd, og árið 2008 í Kína fyrir Asíulönd með áherslu á beina
nýtingu jarðhitans. Fyrirlestra og erindi frá námskeiðunum er að finna á vefsíðu JHS
(www.unugtp.is).
Námskeið í El Salvador
Dagana 17.-30. október 2009 var haldið námskeið í E1 Salvador um yfirborðsrannsóknir
á jarðhitasvæðum (Short Course on Surface Exploration for Geothermal Resources).
Namskeiðið var haldið í samvinnu við jarðhitaorkufyrirtækið LaGeo í E1 Salvador.
Námskeiðið var tvískipt. Fyrri vikunni var varið í mælingar og rannsóknir á Ahuachapan
jarðhitasvæðinu. Þar voru aðferðir í jarðeðlisfræðilegum mælingum kenndar, sem og
aðferðir í sýnatöku á jarðhitasvæðum. Seinni vikan fór fram í höfuðstöðvum LaGeo í
Santa Tecla og samanstóð af fyrirlestrum og verkefnum tengdum yfirborðsrannsóknum,
einkum a sviði jarðeðlisfræði og jarðefnafræði. Námskeiðinu lauk með eins dags
raðstefnu um jarðhita í Mið Ameríku, sem haldin var í samvinnu LaGeo, JHS og
Alþjóðajarðhitasambandsins.
Þátttakendur á námskeiðinu voru alls 32 frá Mið-Ameríkulöndunum E1 Salvador,
Kostaríka, Níkaragva, Gvatemala og Hondúras, og frá Karabísku eyjunum Nevis og
Dommiku. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru 18 og komu frá íslandi, E1 Salvador,
Kostaríka og Níkaragva.
Námskeið i Kenýa
Dagana 1.-22. nóvember 2009 var haldið námskeið í jarðhitarannsóknum við
Bogonavatn og Naivashavatn í Kenýa (Short Course IV on Exploration for Geothermal
Resources). Námskeiðið var haldið venju samkvæmt í samvinnu við Landsvirkjun Kenýa
(KenGen) og hið nýstofnaða kenýska jarðhitarannsóknarfyrirtæki Geothermal
Development Company (GDC).
Námskeiðið var þrískipt. Fyrsti hlutinn fór fram við Bogoriavatn þar sem nemendur
skoðuðu jarðhita og kynntust rannsóknaaðferðum undir leiðsögn sérfræðinga frá
KenGen og GDC. Þann 8. nóvember var farið að Naivasha vatni þar sem kennslan næstu
vikuna var í formi fyrirlestra um rannsóknaaðferðir og stöðu jarðhitans í Austur-Afríku.
Síðustu vikuna var áherslan á verkefnavinnu. Á námskeiðinu var farið yfir helstu atriði
yfirborðsrannsókna á jarðhitasvæðum, jarðfræði, efnafræði og jarðeðlisfræði, og gefið
yfirlit um aðra þætti jarðhitarannsókna, allt frá umhverfisrannsóknum og forðamati vfir
í bortækni. 3
i o o
Arbók VFl/TFl 2010