Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 214
Rannsóknir í rafmagns- og tölvuverkfræði hafa verið öflugar á árinu og gerðar í miklu
samstarfi við erlenda háskóla, sem og fyrirtæki og stofnanir. Kennarar og nemendur
deildarinnar hafa birt fjölmargar ISI og ritrýndar ráðstefnugreinar með samstarfs'
mönnum frá m.a. Bandaríkjunum, Frakklandi, Ítalíu, Ástralíu, Japan, Taiwan, Kína,
Svíþjóð og Danmörku.
Deildin réð tvo nýja starfsmenn á árinu; dr. Hrefnu Marín Gunnarsdóttur, sem var ráðin
til kennslu og rannsókna í fjarskiptaverkfræði, og dr. Ragnar Ólafsson, sem var ráðinn til
að sinna m.a. kennslu og rannsóknum í rafeindatækni. Hrefna kemur til deildarinnar frá
Stanfordháskóla og Ragnar frá University of Michigan. Rafmagns- og tölvuverkfrceði'
deild er í IEEE-samtökunum og voru margir opinberir fyrirlestrar haldnir við HÍ 2010 í
samvinnu þessara aðila. Vefsíða deildarinnar er http://von.hi.is/rtv.
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild
Mikil aðsókn hefur verið í nám í Umhverfis- og byggingarverkfræði síðustu ár. Um
320 nemendur samtals stunda nám á BS, MS og Ph.D. stigi við deildina. Undanfarin áf
hafa hátt í 30 útskrifast með BS-próf á ári. Framhaldsnám við deildina er öflugt og hefur
vaxið. Um þessar mundir eru um 60 nemendur í MS-námi og 11 í Ph.D.-námi og að auki
urrt 10-15 erlendra skiptinema. MS og Ph.D. rannsóknir eru fjölbreyttar, m.a. á sviði
skipulags, orkumála, straumfræði, vatnafræði, umferðaröryggis, samgöngumála og jarð-
skjálftaverkfræði. Útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir í frekara framhaldsnám hjá virtum
erlendum skólum og til starfa hjá atvinnurekendum.
Á árinu varði Rajesh Rupakhety, frá Nepal, aðjúnkt
við deildina doktorsritgerð sína. Hann starfar við
Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði.
Rannsóknir við deildina eru kraftmiklar og í góðu
samstarfi við innlenda og erlenda háskóla, fyrirtaeki
og stofnanir, m.a. frá Norðurlöndunum, EvrópU'
ríkjum, Bandaríkjunum og Asíu. Deildin leiðir
verkefnið GEORG, GEOthermal Research Group
(www.georg.hi.is), sem er styrkt af Vísinda- og
tækniráði Rannís og er samstarfsverkefni fjölþjóð'
legra þátttakenda. Niðurstöður rannsókna eru
birtar á alþjóðlegum ráðstefnum og í vísinda-
greinum. Sjá má lista yfir birtingar og lokaritgerðir
á heimasíðu deildarinnar. http://von.hi.is/ub.
Samstarf
Verkfræði- og náttúruvísindasvið á í margvíslegu samstarfi við íslensk fyrirtæki, stofn'
anir og aðra háskóla. Þetta samstarf er starfsfólki sviðsins afar dýrmætt og má segja að
íslenskt atvinnulíf og samfélag hafi verið einn helsti stuðningsaðili sviðsins.
Akademískir starfsmenn og stúdentar eiga líflegt samstarf við erlenda skóla og stofnanir
í sínu fagi. Með hjálp Erasmus og Nordplus hefur fjöldi nemenda farið til tímabundinnar
dvalar hjá erlendum háskóla. Háskóli íslands á í samstarfi við fjölda háskóla bæðij
N-Ameríku, sem og í Japan, Ástralíu og víðar. Segja má að tengslanet skólans teygi sig dt
um allan heim.
2 1 2
Arbók VFl/TFl 2010