Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 212
Dagana 6.-9. júní stóð Kristján
Jónasson, prófessor í töK'unarfræði,
fyrir ráðstefnunni Para 2010. Þar var
viðfangsefnið stórtölvur. Hinn 7. jún'
var haldin djúpsjávarráðstefna a
vegum Jörundar Svavarssonar,
prófessors í sjávarlíffræði. Fjölch
erlendra fyrirlesara sótti ráðstefnuna-
í lok júni, dagana 28. júní til 1. júð
gékkst Hrund Andradóttir, dósent 1
Umhverfis- og byggingarverkfræði'
deild, fyrir ráðstefnunni „Physicaj
Processes in Natural Waters' ■
Viðfangsefni ráðstefnunnar var vatn
og vatnsgæði. Sérstök áhersla var
lögð á vatnakerfi á köldum slóðurn
og áhrif hnattrænnar hlýnunar a
stöðuvötn.
Sigurður Brynjólfsson
prófessor flutti erindi á
Rannsóknarþingi.
í lok ágústmánaðar var haldin
ráðstefnan Leyndardómar Grænlands-
jökuls, 27.-29. ágúst, í tilefni 70 ára afmælis Sigfúsar J. Johnsens
og því að hann var gerður að heiðursdoktor frá Jarðvísindadeild-
Dagana 13.-18. september 2010 var haldin Balaton-ráðstefna hér á
landi á vegum Kristínar Völu Ragnarsdóttur sviðsforseta. Balaton-
hópurinn hefur hist víðs vegar um heiminn um árabil og rætt
leiðir til að auka sjálfbæra þróun þjóða og samfélaga. Viðfangsefm
ráðstefnunnar að þessu sinni voru sjálfbær fjármálakerfi og fæðu-
öryggi. Fjöldi heimsþekktra fyrirlesara kom á fundinn. Þess ma
geta að tveir þeirra voru teknir tali í sjónvarpsþættinum Silfrl
Egils, þeir Chris Mortenson og Tim Jackson.
Fyrsta rannsóknarþing VoN, Verkfræði- og náttúruvísindasviðs,
var haldið dagana 8. og 9. október 2010. Fyrir skipulagsbreyting3’
Háskóla íslands 2008 hélt Raunvísindadeild svokalUÚ
Raunvísindaþing annað hvert ár með mjög góðum árangö-
Áhersla var þar lögð á birtingar rannsókna framhaldsnerria,
einkum doktorsnema, og almennra vísindarannsókna akadein'
ískra starfsmanna. Vísindanefnd Verkfræði- og náttúruvísinda'
sviðs lagði til við sviðsstjórn síðastliðið ár að stefnt yrði að því að
halda svipað rannsóknaþing árið 2010, þar sem saman kæmu allat
sex deildir sviðsins. Starfsmönnum gafst með þessu móti kostur a
að vekja athygli á fjölbreyttum og gróskumiklum rannsóknuin
sviðsins. Með sameiginlegu þingi skapaðist öflugur vettvangur tu
kynninga á rannsóknum og hvatning til þverfaglegra rannsókna
innan sviðsins og jafnvel utan þess. Fjöldi erinda var haldinn og
mörg veggspjöld sett upp og var neðri hæðin á Háskólatorgi þútl
skipuð þessa tvo daga sem rannsóknaþingið var í gangi. Dagana
16.-20. október var NordiCHI 2010 ráðstefnan haldin á Hilt011
Nordica í Reykjavík. Ráðstefnan er haldin á tveggja ára fresti víðs
vegar um Norðurlöndin. Viðfangsefni ráðstefnunnar var sarn-
skipti manns og tölvu, þar sem hönnuðir, forritarar og fleiri skipt'
ast á skoðunum um viðmót og fleira. Ráðstefnan var haldin i sarU'
starfi við Háskólann í Reykjavík. Skipuleggjandi af hálfu HáskóU
Islands var Ebba Þóra Hvannberg, prófessor í tölvunarfræði.
2 1 0
Arbók VFl/TFl 2010