Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Page 213
Af verkfræðideildum
'ðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild
Netnendur við deildina hafa aldrei verið fleiri og er
aösókn mikil bæði í grunnnám og framhaldsnám.
Að vanda sækja flestir í iðnaðarverkfræði,
vélaverkfræði og tölvunarfræði, en einnig hefur
aðsókn verið góð í hugbúnaðarverkfræði, efnaverk-
fræði og í nýju greinarnar fjármálaverkfræði og
reikniverkfræði, en fyrstu nemendurnir með þær
gráður brautskráðust árið 2009. Auk hefðbundins
r>áms innan deildarinnar er deildin aðili að námi í
samvinnu við aðra. Þannig brautskráðust frá
deildinni á þessu ári fjórði hópurinn í meistaranámi
1 verkefnastjórnun, MPM, en það nám er kennt í
samvinnu við Endurmenntun HÍ. Annar hópurinn
frá RES-orkuskólanum í samvinnu við Háskólann á
Akureyri og fyrsti hópurinn frá REYST-orku-
skólanum í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur
°8 Háskólann í Reykjavík voru brautskráðir á
árinu.
Myndin var tekin á Háskóladeginum 2010 þar
sem tölvunarfræðinemar kynntu sitt nám.
A árinu urðu tímamót þegar deildin brautskáði fyrsta kandídatinn, Stein Guðmundsson,
oreð doktorsgráðu í tölvunarfræði frá Háskóla íslands. Rannsóknir við deildina hafa
verið með kröftugasta móti, fjöldi greina hafa birst í virtum ritrýndum tímaritum, starfs-
menn deildarinnar hafa verið iðnir við að sækja rannsóknastyrki innanlands og utan.
sem dæmi má nefna CRISIS-verkefnið sem hlaut Evrópustyrk úr FP7-áætluninni, en það
er á sviði tölvunarfræði. Að auki hafa starfsmenn deildarinnar verið leiðandi við upp-
°yggingu á hinu nýja Kerfislíffræðisetri sem er nú þegar orðið öflugt rannsóknasetur.
vefsíða deildarinnar er http://von.hi.is/ivt.
Rofmagns- og tölvuverkfræðideild
Aðsókn að grunnnámi í rafmagns- og tölvuverkfræðideild hefur fjórfaldast á síðustu
Premur árum. Árið 2010 sóttu 84 nemendur um nám við deildina. Nemendur deildar-
jrmar hafa margir hverjir staðið sig afar vel í námi, t.d. hlotið verðlaun úr Minningarsjóði
Porvalds Finnbogasonar, verið valdir til að taka þátt í SURF (Summer Undergraduate
Research Fellowship) verkefni Caltech-háskólans í Bandaríkjunum og unnið til
niargvíslegra verðlauna. Deildin útskrifaði á árinu
fvo verkfræðinga með doktorsgráðu, þau Yuliyu
mrabalka og Sigurjón Árna Guðmundsson.
A árinu voru námskeið í framhaldsnámi stækkuð
ár 6 ECTS-einingum í 10 ECTS. Á öðru ári
8runnnáms voru stofnuð sérstök verkleg námskeið
Sem fylgja bóklegum fögum og þar með var vægi
°g sýnileiki verklegs hluta námsins aukið. Þetta var
8ert samhliða því að deildin tók í notkun nýja og
gjæsilega stofu til verklegrar kennslu í VR-III.
jiinnig var tekinn í notkun glæsileg starfsaðstaða
fyrir framhaldsnema í VR-II samhliða því að kenn-
jjrar deildarinnar fluttu í VR-II. Nú eru grunn- og
uamhaldsnemar, sem og kennarar deildarinnar,
a'|ir í sama húsnæðinu. Nemendur úr Rafmagns- og tölvuverkfræði
við verklegar æfingar.
Kynning og tæknigreina
fyrirtækja og stofnana
2 1 1