Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 315
dýpkunarefni úr höfnum á lands-
byggðinni sé notað í landfyllingar og
því hefur ekki verið eins mikil þörf
fyrir uppdælingu á möl og sandi
utan hafna. Hér á eftir verður í stuttu
máli gerð grein fyrir forsendum leyf-
anna og farið réttsælis í kringum
landið (15. og 16. mynd).
Grundarfjörður: í janúar 2001 sótti
Siglingastofnun íslands, f.h. hafnar-
stjórnar Eyrarsveitar, um leyfi til
töku um 100.000 m3 í austanverðum
Grundarfirði. Grófu mölina sem þar
fannst átti að nota í fyllingu undir
hafnarmannvirki vegna lengingar
Stórubryggju í Grundarfjarðarhöfn.
Iðnaðarráðherra veitti Eyrarsveit, í
febrúar 2001, leyfi til eins árs til töku
allt að 130.000 m3 af möl og sandi á
hafsbotni framan við ós Grundarár í
austanverðum Grundarfirði. Ekki
var leyft að fara nær landi en 150 m
frá stórstraumsfjöruborði og ekki
grynnra en á 6 m sjávardýpi. í febrúar 2006 barst síðan ný umsókn frá Grundar-
fjarðarbæ um leyfi til að taka allt að 50.000 m3 á sama svæði, því einungis hefðu verið teknir
100.000 m3 af þeim 130.000 m3, sem leyfi var veitt fyrir árið 2001. Efnið átti að nota í land-
fyllingu innan fyrirstöðugarðs norðanvert við Stórubryggju, en á fyllingunni var gert ráð
fyrir byggingarlóðum vegna hafnarstarfsemi. Iðnaðarráðherra veitti Grundarfjarðarbæ í
febrúar 2006 leyfi til töku allt að 30.000 m3 af möl og sandi í austanverðum Grundarfirði,
en í leyfinu eru engin ákvæði um gildistíma.
Arnarfjörður: í júní 2004 sótti Vesturbyggð um leyfi til töku allt að 75.000 m3 malarefnis
í Fossfirði, sem er einn af Suðurfjörðum Arnarfjarðar. Efnið átti að nota í fyllingu innan
fyrirstöðugarðs sem byggja átti við Bíldudalshöfn, en hann var hluti að þeim hafnar-
framkvæmdum sem þurfti að ráðast í vegna byggingar kalkþörungaverksmiðju. Iðnaðar-
ráðherra veitti Vesturbyggð, í ágúst 2004, leyfi til sex daga til töku allt að 75.000 m3 af möl
á um 25.000 m2 svæði í botni Fossfjarðar.
Skutulsfjörður og Álftafjörður við ísafjarðardjúp: í júlí 1997 sótti Eyrarsteypan á
ísafirði um leyfi til töku 3.000-15.000 m3 á ári af efni til steypugerðar í suðvestanverðum
Polli í botni Skutulsfjarðar. Iðnaðarráðherra veitti Eyrarsteypunni, í júlí 1997, leyfi til
þriggja ára til töku allt að 5.000 m3 á ári af sandi og möl í Polli, en ekki var leyft að taka
efni nær landi en sem svarar til 4 m sjávardýpis við stórstraumsfjöru. í júní 1995 sótti
Súðavíkurhreppur um leyfi til töku 30.000-35.000 m3 af sandi og möl norðan undan
Hattareyri í Álftafirði, en efni hafði verið dælt upp á svipuðum stað fyrir 1980. Hefja átti
gatnagerð um sumarið í landi Eyrardals vegna nýrrar byggðar í Súðavík og efnið átti að
nota í burðarlag nýrra gatna og einnig til steypugerðar. Iðnaðarráðherra veitti Súðavíkur-
hreppi, í júní 1995, leyfi til eins árs til töku allt að 35.000 m3 af sandi og möl á 10.000 m2
svæði undan Hattareyri. í tengslum við gerð jarðgangna á milli Bolungarvíkur og Hnífs-
dals var þörf á efni sem uppfyllti þær gæðakröfur sem gerðar eru til steypuefnis. Slíkt
efni fannst ekki á landi í næsta nágrenni og því var sótt um leyfi til að taka það af hafs-
botni. í því skyni veitti Orkustofnun steypustöðinni Áseli á ísafirði, íjanúar 2009, leyfi til
uppdælingar á allt að 15.000 m3 af möl og sandi á svipuðum stað í Álftafirði og gert var
árið 1995.
Skutulsfjörður^ Siglufjörður
®*Álftafjörður
Arnarfjörðurj Eyjafjörður •
Viðfjörður*
Grundarfjörðu^
Syíra.H,au„ri5 • w Kollafjorður Homafjörður
Leyfi til efnistöku af hafsbotni • Útgefin af iðnaðarráðherra, alls 14 leyfi
V • Útgefin af Orkustofnun, alls 10 leyfi ^
16. mynd. Staðsetning leyfa til töku malar, sands, skeljasands og kalkþörungasets sem
veitt voru af iðnaðarráðherra á árunum 1990-2008 og af Orkustofnun frá ágúst 2008.
Tækni- og vfsindagreinar i 3 1 3