Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 278
Hér á eftir fylgir tafla með settum markmiðum varðandi ómtíma, áætlaðan ómtíma skv.
líkanreikningum og loks niðurstöður einfaldra ómtímamælinga fyrir nokkrar tegundir
rýma. Ekki hefur enn gefist færi á að framkvæma mælingar í stóru rýmunum tveimur, en
til stendur að reyna að bæta úr því.
Tafla 1. Ómtími nokkurra rýma
Rými Markmið Áætlað Mælt
Fyrirlestrarsalur <0,8s 0,68s 0,69s
Stór kennslustofa <0,8s 0,60s 0,73s
Kennslustofa jarðhæð <0,8s 0,60s 0,67s
Kennslustofa 2.hæð <0,8s 0,55s 0,58s
Hópvinnuherbergi <0,6s 0,60s 0,60s
Lokaorð
Svo stóru og metnaðarfullu verkefni sem bygging Háskólans í Reykjavík er verður ekki
gert fullkomlega grein fyrir í stuttri grein sem þessari. Á öllum sviðum hefur verið lögð
gífurleg virtna í að sjá til þess að húsnæði háskólans sé eins og best verður á kosið. Er hér
ekki síður átt við um fagurfræðileg sjónarmið, notagildi, lýsingu, loftræstingu, rafkerfi og
fleira sem ekki hefur verið rætt hér. Er það enda merki um góða hönnun að bygging sé
falleg, hagnýt og þægileg í notkun; m.ö.o. að þar líði fólki vel.
Hvað hljóðvist varðar var háskólabyggingin mjög krefjandi verkefni. Stærð byggingar-
innar og fjöldi ólíkra rýma kallaði á mismunandi lausnir. Stærð ákveðinna rýma og þ»r
kröfur sem gerðar voru til þeirra auðvelduðu þá ekki verkið. Til þess að ná sem bestum
árangri þarf hins vegar að setja markið hátt. Með mikilli og góðri samvinnu sérfræðinga
á hinum ýmsu sviðum tókst að leysa þau vandamál sem upp komu og ná þeim mark-
miðum sem sett voru.
Þegar öllu er á botninn hvolft er það þó ávallt upplifun og álit notenda hússins sem
skiptir mestu máli, burtséð frá markmiðum sem kunna að hafa verið sett. Stór hluti bygg'
ingarinnar hefur nú verið í notkun í nokkra mánuði og annar hluti nýlega tekinn í notkun
að auki. Hafa kennarar jafnt sem nemendur lýst yfir mikilli ánægju með húsnæðið og þá
upplifun sem það gefur og er það fyrir öllu.
Höfundar vilja að lokum nota tækifærið til að óska Háskólanum í Reykjavík, starfsfólki
hans og nemendum, innilega til hamingju með glæsilegt nýtt heimili. Er það óskandi að
það megi verða til þess að stuðla að enn glæstari framtíð skólans.
2 7 6
Arbók VFl/TFl 2010