Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Qupperneq 83
flutnings árin 2004—2006, dróst saman árið
2007, jókst 2008 en minnkaði 2009 auk þess
sem hlutdeild útflutnings var komin niður
fyrir fimmtung árið 2005 en hefur hækkað
árin 2006-2009 og árið 2009 var meira flutt
ut en inn til landsins í fyrsta skipti frá árinu
2002. Því hærri hlutdeild sem utanríkis-
Verslun hefur af landsframleiðslu, því opn-
ara er hagkerfið talið. Þar sem hlutdeild vöru-
Vlðskipta hefur lengst af verið í kringum
fjórðung af landsframleiðslu bendir það til
þess að þegar litið er á vöruviðskiptin
eiugöngu hafi hagkerfið ekki verið að
°pnast þó að breytingar hafi orðið síðustu
ar- Þjónustuviðskiptin við útlönd hafa hins
Vegar stóraukist. Sveiflur í gengi geta einnig
skekkt þennan samanburð einstök ár.
“tflutningur og innflutningur eftir helstu vöruflokkum
Heildarútflutningur 2009 á gengi hvors árs jókst um 7,3% frá árinu 2008 eða um 34 millj-
arða króna. Til samanburðar dróst heildarútflutningur 2009 á föstu gengi saman um 20%
eða 125 milljarða. Iðnaðarvörur voru 48,6% alls útflutnings og er þetta annað árið í röð,
frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem
hlutdeild iðnaðarvara er hærri en sjávarafurða. Á mynd neðst á síðunni sést hvernig hlut-
rall sjávarafurða í vöruútfiutningi hefur síðustu ár lækkað smám saman á meðan hlutfall
’ðnaðarvara í útflutningi hefur hækkað. Verðmæti iðnaðarvara stóð því sem næst í stað
rrá árinu á undan, hækkaði um 0,2% eða um tæplega 500 milljónir. Á föstu gengi varð
samdráttur 25,3% eða 82,3 milljarðar. í útflutningi iðnaðarvara munar mestu um ál en
utflutningur þess varð 170,7 milljarðar eða 34,1% af heildarútflutningi, dróst saman um
Á2% eða 11,4 milljarða á gengi hvors árs en 30,1% eða 73,4 milljarða á föstu gengi. Álút-
nutningur var sá liður iðnaðarvara sem dróst mest saman í krónum talið frá fyrra ári.
hhflutningur á kísiljárni, 16,9 milljarðar, og á lyfjavörum, 12,0 milljarðar, komu næst áli í
nfflutningi iðnaðarvara. Sjávarafurðir voru 41,7% alls útflutnings og voru fluttar voru út
sjávarafurðir fyrir 208,6 milljarða, jukust um 21,8% frá fyrra ári eða um 37,3 milljarða á
8erigi hvors árs. Á föstu gengi dróst útflutningur sjávarafurða hins vegar saman um 9,2%
eóa 21,1 milljarð. Á árinu 2009 vó útflutningur á botnfiski mest í útflutningi sjávarafurða,
26,9% en var 22,7% af heildarútflutningi á
arinu 2008. Útflutningur á þorski var 15,1%
alls útflutnings eða 75,5 milljarðar en þær
tegundir sem komu næst voru síld með
~u,7 milljarða króna útflutning, ýsa með
^U/3 milljarða króna útflutning og karfi með
f6,0 milljarða króna útflutning. Á gengi
avors árs jókst útflutningur sjávarafurða
aúallega vegna aukins verðmætis útflutn-
',n8s á þorski, síld, grálúðu og karfa en
utflutningur á loðnu dróst saman.
| útflutningi á öðrum vörum átti útflutn-
lr,gur á flugvélum stærsta hlutdeild en hann
nam 22,7 milljörðum á árinu 2009, dróst
saman um 6,1 milljarð á gengi hvors árs frá
‘V'uu á undan (15,9 milljarða á föstu gengi).
^rið 2009 voru fluttir út bílar fyrir 7,1 milljarð.
Landbúnaðarafuröir
Útflutningur eftir vöruflokkum (Hagstofuflokkun) árin
1840-2009.
Heimild:Hagstofa íslands.
Tækniannáll