Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 90
almannatrygginga 18,2% eða 138,7 milljarðar króna, sveitarfélaga 26,6% eða 203,3 millj-
arðar króna, og ríkissjóðs 55,2% eða 421,4 milljarðar króna.
Afkoma hins opinbera
Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 149 milljarða króna árið 2009, eða 9,9% af
landsframleiðslu og 24,3% af tekjum hins opinbera. Til samanburðar var tekjuafkoman
neikvæð um 13,5% af landsframleiðslu 2008 en jákvæð um 5,4% árið 2007. Án 192 millj-
arða króna skuldayfirtöku ríkissjóðs var tekjuhalli hins opinbera 8 milljarðar króna 2008
eða 0,6% af landsframleiðslu. Þessi óhagstæða þróun skýrist fyrst og fremst af miklum
samdrætti í hagkerfinu, en hagvöxtur var neikvæður um 6,8% árið 2009, ásamt auknum
útgjöldum vegna mikillar skuldsetningar og aukins atvinnuleysis. Skatttekjur drógust
saman um 41 milljarð króna ámilli ára á sama tíma og vaxtagjöldin jukust um 49 milljarða
króna, félagslegar tilfærslur til heimilanna um 32 milljarða og samneysluútgjöld um
27 milljarða króna.
Tekjuafkoma ríkissjóðs ræður miklu um afkomu hins opinbera í heild, en árið 2009 nam
tekjuhalli ríkissjóðs 123,6 milljörðum króna eða 8,3% af landsframleiðslu. Til saman-
burðar var tekjuafkoma hans neikvæð um 191,7 milljarða króna 2008 (13% af landsfram-
leiðslu) en jákvæð um % milljarð króna án skuldayfirtöku. Þessi viðsnúningur skýrist
einkum af minni skatttekjum og auknum vaxtaútgjöldum og fjárframlögum til almanna-
trygginga. Almannatryggingar voru þó reknar með 10,4 milljarða króna tekjuhalla á
árinu 2009 samanborið við 4,4 milljarða króna tekjuafgang árið 2008. Skýringa er einkum
_________________ að leita í hallarekstri Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs, en tekjuafkoma hans var neikvæð
um 14 milljarða króna á árinu 2009.
Tekjuhalli sveitarfélaganna árið 2009 var um
15 milljarðar króna eða 1% af landsfram-
leiðslu og 7,9% af tekjum þeirra. Til saman-
burðar var tekjuhalli þeirra um 13 milljarðar
króna árið 2008 eða 0,9% af landsfram-
leiðslu. Minni skatttekjur sem lækkuðu um
2 milljarða króna milli ára í krónum talið á
sama tíma og rekstrarútgjöld jukust um
rúmlega 13 milljarða króna skýra þessa
þróun, en á móti vegur 14 milljarða króna
minni fjárfesting milli ára.
Tekjuafkoma hins opinbera sem hlutfall af lands-
framleiðslu..
Heimild: Hagstofa fslands.
IIIII
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008
■ Heildarútgjöld
Helldartekjur
Tekjur og útgjöld hins opinbera sem hlutfall af lands-
framleiðslu.
| Heimild: Hagstofa (slands.
Tekjur hins opinbera
Tekjur hins opinbera lækkuðu um 6% eða
39.3 milljarða króna milli ára og voru 614
milljarðar króna árið 2009. Sem hlutfall af
landsframleiðslu mældust þær 40,9% saman-
borið við 44,2% árið 2008 og 47,9 árið 2007,
en fara þarf aftur til ársins 1998 til finna
lægra hlutfall tekna af landsframleiðslu.
Tekjur ríkissjóðs lækkuðu úr 32,3% af lands-
framleiðslu 2008 í 29,5% 2009 og tekjur
sveitarfélaganna úr 13,1% í 12,6%. Tekjur
almannatrygginga hækkuðu hins vegar um
1.3 prósentustig af landsframleiðslu og
námu 8,9% 2009, en hækkunin skýrist mikið
til af auknum fjárframlögum til atvinnuleysis-
trygginga og sjúkratrygginga vegna S-lyfja.
8 8
Arbók V F í / T F í 2010