Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 314
Efnistökusvæði
í Hvalfirði, Kollafirði
og við Syðra-Hraun
2009-2019
Akranes
^^1 Aiifanrin
Laufagrunn
Ólastaður ^
/
Syðra-Hraun
8 10 km
Seltjarnarnes
Kjalarnes
Kjalarnes®
__Saltvík
Kollafjörður Lundey
Viðeyjarflak |
Engey^,
Álfsnes
Þerney
^Leiruvogur
Vlðey
árunum 1999-2009, en ekki liggja
fyrir upplýsingar um magn efnis í
Hvalfirði fyrir árið 1999. Á línuritinu
sést glögglega hve efnistaka við
Syðra-Hraun er lítil í samanburði við
efnistökuna í Kollafirði og Hvalfirði,
en hún er frá því að vera engin árið
2007 og upp í um 280.000 m3 árið
2004. Magn efnis sem dælt hefur
verið upp í Kollafirði er breytilegt á
milli ára, en er oftast á bilinu
400.000-800.000 m3 á ári, en minnkar
verulega á árunum 2008-2009. Magn
efnis sem dælt hefur verið upp í
Hvalfirði er nokkuð breytilegt á milli
ára, en á árunum 2004-2008 er það
nokkuð stöðugt eða á bilinu um
580.000-680.000 m3 á ári. Það vekur
athygli að efnistakan í Hvalfirði fer
ekki að minnka fyrr en á árinu 2009.
Ef efnismagn í Hvalfirði og Kollafirði
er borið saman á þessu tíu ára tíma-
bili sést að efnistakan fer vaxandi í
Hvalfirði á síðari hluta tímabilsins á
meðan hún minnkar í Kollafirði. Ef
litið er á árlegt heildarefnismagn á svæðunum þremur er það að sveiflast frá um
800.000-1.400.000 m3 á ári, en árið 2009 sker sig úr því magnið er komið niður í um
360.000 m3. Hlutur malar og sands sem dælt var upp utan hafna á svæðunum þremur var
58% af heildarefnistöku af hafsbotni á árunum 2000-2009, eða um 10,4 millj. m3. Upp-
dæling í Kollafirði var 27,3 % af heildarefnistökunni, eða um 4,9 millj. m3, í Hvalfirði
26,8%, eða um 4,8 millj. m3 og við Syðra-Hraun 3,9%, eða tæpir 700.000 m3.
■'Ó',
I< 1
T
14. mynd.Efnistökusvæði i Hvalfirði, Kollafirði og við Syðra-Hraun árin 2009-2019,
samkvæmt fjórum leyfum sem Orkustofnun veitti Björgun árið 2009.
Uppdæling malar og sands utan Faxaflóa
Lítið er til af gögnum um uppdælingu á möl og sandi utan hafna á svæðum utan Faxaflóa
á 7., 8. og 9. áratug síðustu aldar. Heimildir eru þó fyrir því að uppdæling hafi byrjað í
Viðfirði við Norðfjarðarflóa og >
Álftafirði við ísafjarðardjúp á 8. ára-
tugnum. Frá setningu laga um eignar-
rétt íslenska ríkisins að auðlindum
hafsbotnsins árið 1990 hefur iðnaðar-
ráðherra gefið út a.m.k. tólf leyfi til
efnistöku af hafsbotni utan Faxaflóa.
Frá því leyfisveitingarvaldið var falið
Orkustofnun árið 2008 [21], hefur
stofnunin gefið út tvö leyfi til efnis-
töku af hafsbotni utan Faxaflóa, þ.e. í
Álftafirði við ísafjarðardjúp og í
Siglufirði. Eftir því sem næst verður
komist var dælt upp um 623.000 m3
af möl og sandi utan Faxaflóa á
árunum 2000-2009, sem er einungis
3,5% af heildarefnistöku af hafsbotni
á þessu tímabili. Eins og fjallað hefur
verið um hér framar er mikið um að
Leyfi til efnistöku af hafsbotni utan Faxaflóa N
Gildistími Efnismagn
Efnistökusvæði_________________leyfis rúmm Notkun efnis Leyfishafi
Grundarfjörður 2001-2002 130.000 Fyllingar vegna hafnargerðar Eyrarsveit
Grundarfjörður 2006-2006 30.000 Landfyllingar við höfn Grundarfjarðarbær
Arnarfjörður 2003-2033 2.475.000 Kalkþörungaset, ýmis notkun ísl. kalkþörungafélagið
Arnarfjörður 2004-2004 75.000 Fyllingar vegna hafnargerðar Vesturbyggð
Skutulsfjörður við ísafj.djúp 1997-2000 15.000 Steypuefnio.fi. Eyrarsteypan, ísafirði
Álftafjörður við ísafj.djúp 1995-1996 35.000 Fyllingar í götur, steypuefni Súðavíkurhreppur
Álftafjörður við ísafj.djúp 2009-2009 15.000 Steypuefni Ásel, Ísafirði
Siglufjörður 1996-1997 30.000 Fyllingar í götur og grunna Siglufjarðarkaupstaður
Siglufjörður 1997-2007 100.000 Fyllingar í götur og grunna Siglufjarðarkaupstaður
Siglufjörður 2010—2012 20.000 Fyllingar í grunna og götur Björgun
Eyjafj. norðan Árskógsstr. 2001-2004 20.000 Fyllingar í vegi Hríseyjarhreppur
Eyjafj. við Nunnuhólma 1995-1996 20.000 Til bygginga, í fyllingar Björgun/Möl og sandur
Eyjafj. Nunnuh., Svalb.eyri 2001-2004 45.000 Til bygginga, í fyllingar Björgun
Viðfjörður v. Norðfjarðarflóa 2002-2004 60.000 Fyllingar vegna hafnargerðar Hafnarsj. Fjarðarb.
Hornafjarðarós 2005-2006 40.000 Dýpkunarefni, losað í sjó Sveitarf. Hornafjörður
15.mynd. Leyfi til efnistöku af hafsbotni utan Faxaflóa.
3 1 2
Árbók VFÍ/TFÍ 2010