Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 174
A komandi árum verður nýsköpun að standa undir sífellt stærri hluta verðmæta-
sköpunar á íslandi. Það er eina leiðin til þess að standa undir velferð og lífsgæðum í land-
inu. Mikilvægi þess að gera fólk og fyrirtæki á íslandi hæfari til að vinna markvisst að
þekkingaryfirfærslu og nýsköpun blasir við. Ýmsar leiðir eru þekktar til þess að stuðla að
þekkingaryfirfærslu. Þær leiðir sem reynst hafa árangursríkar hverfast þó allar um sam-
eiginlegt meginstef; stefnumiðaða samvinnu og tengslanet.
Samstarf háskóla og atvinnulífs er mikilvægt tæki til að stuðla að þekkingaryfirfærslu í
þágu nýsköpunar. Mikilvægt er að háskólar og fyrirtæki geti komið saman á vettvangi
þar sem þau geta bæði mótað sameiginlega sýn til lengri tíma og unnið að hagnýtum
lausnum til skemmri tíma. Skortur á slíku samstarfi hefur einmitt reynst einn helsti veik-
leiki nýsköpunar í Evrópu og ljóst er að hér á landi þarf að gera mun betur.
Á Nýsköpunarmiðstöð íslands er unnið að ýmsum verkefnum sem byggjast á innleiðingu
og þróun aðferðafræði £ þágu nýsköpunar og þekkingaryfirfærslu. Þeirra á meðal eru t.d.
• Klasasamstarf fyrirtækja, en á Nýsköpunarmiðstöð hefur um árabil verið
unnið að klasasamstarfi fyrirtækja um viðskiptaþróun og nýsköpun.
• Fabrication Laboratory, eða Fab Lab, er stafræn smiðja með tækjum og tólum
til að hanna og búa til nánast hvað sem er. Fab Lab eykur þekkingu á persónu-
miðaðri nýsköpun, tæknilæsi og tæknivitund. Fab Lab byggir á aðferðafræði
„opinnar nýsköpunar" þar sem notendur, framleiðendur og hönnuðir mætast.
• Living Lab er verkefni sem nýlega er hafið á Nýsköpunarmiðstöð. Verkefnið
snýst um „markaðsþróun á vettvangi" og byggir eins og Fab Lab á opinni,
notendadrifinni nýsköpun þar sem komið er á tengslum framleiðenda og
notenda með það að markmiði að gera nýsköpun skilvirkari og meira skap'
andi.
• Nýsköpunarmiðstöð er leiðandi í rekstri frumkvöðlasetra á íslandi, en mið-
stöðin rekur fimm slík setur á landsvísu og er samstarfsaðili um rekstur
tveggja annarra. Ef vel er að verki staðið geta frumkvöðlasetur og tæknigarðar
verið áhrifaríkur vettvangur til að snúa þekkingu yfir í verðmæta nýsköpun,
ekki síst þegar um að ræða hagnýtingu rannsókna og þróunar á sviði hátækni-
En þetta ferli á sér sjaldnast stað af sjálfu sér. Mikilvægt er að til staðar sé
stuðningur og þekking á markvissum vinnubrögðum til þess að slík þekk-
ingaryfirfærsla eigi sér stað og nýtist í nýsköpun og verðmætasköpun.
• Nýsköpunarmiðstöð vinnur að tækniyfirfærslu með ýmsum hætti, bæði á
sviði tæknirannsókna og í gegnum alþjóðlegt samstarf um tækniyfirfærslu.
Tækniyfirfærsla
Tækniyfirfærsla er öflug leið til nýsköpunar og aukinnar samkeppnishæfni, hvort sem ei'
á sviði rannsókna, vöruþróunar, breyttra framleiðsluaðferða, hagræðingar, eða á öðrum
sviðum framleiðslu og fyrirtækjareksturs. Hugtakið á við um yfirfærslu tækni frá einni
atvinnugrein til annarrar, en einnig um hagnýtingu fyrirtækja á þekkingu háskóla og
rannsóknastofnana og yfirfærslu á tækni fyrirtækja, rannsóknastofnana eða háskóla
landa á milli.
Nýsköpunarmiðstöð íslands fer fyrir aðild íslands að Enterprise Europe Network (EEN),
sem er stærsta tækniyfirfærslunet í Evrópu og eitt það stærsta í heiminum. EvrópU'
sambandið ýtti Enterprise Europe Network úr vör árið 2008 í því skyni að efla atvinnu-
sköpun og auka hagvöxt meðal aðildarríkja sambandsins. EEN-tækniyfirfærslunetið er
samstarfsvettvangur 580 tæknistofnana, háskóla og stuðningsaðila viðskiptalífsins í
1 7 2
Arbók VFÍ/TFl 2010