Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 77
ÞRÓUN EFNAHAGSMÁLA 2009
Landsframleiðslan 2009
Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 6,8% samkvæmt endurskoðuðum tölum
Hagstofunnar yfir þjóðhagsreikninga á árinu 2009. Samdráttur landsframleiðslu á liðnu
ari Lemur fram í miklum samdrætti þjóðarútgjalda, 20,9%. Samdráttur varð í öllum þátt-
um þjóðarútgjalda, einkaneysla dróst saman um 16%, samneysla um 1,7% og fjárfesting
um 50,9%. Aftur á móti jókst útflutningur um 7,4% á sama tíma og innflutningur dróst
saman um 24,1%. Þessi þróun olli því að verulegur afgangur varð af vöru- og þjónustu-
yiðskiptum á árinu 2009, 132 milljarðar króna, borið saman við 42 milljarða króna halla
arið áður. Þessi mikli bati varð til þess að samdráttur landsframleiðslu varð mun minni
er* nam samdrætti þjóðarútgjalda.
^'kill bati á vöru- og þjónustuviðskiptum hafði jákvæð áhrif á viðskiptajöfnuð en þar
gætti einnig minni halla á launa- og eignatekjum frá útlöndum. Viðskiptahallinn við
utlönd nam 25 milljörðum króna, 1,6% af landsframleiðslu, en árið áður nam hann
^24 milljörðum króna, 21,9% af landsframleiðslu.
Viðskiptakjör versnuðu til muna á árinu 2009 en þrátt fyrir það veldur minni halli á
'fiðskiptajöfnuði en árið áður því að þjóðartekjur dragast mun minna saman en lands-
ramleiðslan eða um 2,1% samanborið við 15,4% samdrátt árið áður. Einkaneysla sem
autfall af landsframleiðslu var 51% á liðnu ári. í sögulegu samhengi er þetta hlutfall
mjog lágt síðustu tvö árin. Samneyslan sem hlutfall af landsframleiðslu var 26%. Þetta er
uokkru hærra hlutfall en undanfarin fimm ár og er einnig hátt í sögulegu samhengi.
Lhutfall fjárfestingar af landsframleiðslu var
„0//° a árinu 2009 og er þetta hlutfall í
^ögulegu lágmarki. Sambærilegt hlutfall
yrir OECD ríkin í heild hefur verið um eða
undir 20% undanfarinn aldarfjórðung.
Ojleiðingar bankahrunsins á 4. ársfjórðungi
2008 og efnahagskreppunnar hérlendis og í
umheiminum valda því að enn gætir nokk-
urrar óvissu um tölulegar niðurstöður fyrir
arin 2008 og 2009. Þetta á sérstaklega við um
riat'fsemi fjármálafyrirtækja.
Landsframleiðsla ársins 2009 er talin hafa
UUrnið 1.501 milljarði króna en það er 23 millj-
u'ðum eða 1,5% hærri fjárhæð en árið áður.
jgð teknu tilliti til verðbreytinga dróst lands-
ramleiðslan saman að raungildi um 6,8%
Samanborið við 1% vöxt árið áður.
Vöxtur landsframleiðslu.
Bráðabirgðatölur fyrir árin 2008 og 2009.
Heimild: Hagstofa Islands.
7 5
Tækniannáll