Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Side 96
MANNFJÖLDI Á ÍSLANDl
Mannfjöldi l.janúar 2010
Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá lokum 19. aldar. Þann 1. janúar
2010 voru 317.630 íbúar með fasta búsetu á íslandi, samanborið við 319.368 ári áður.
Fækkunin nemur hálfu prósenti. Á síðustu fimm árum hefur fjölgun landsmanna þó
verið hlutfallslega ör eða 1,6% á ári að jafnaði.
Fólki fækkaði á öllum landsvæðum á árinu 2009. Fækkunin varð mest á Austurlandi og
á Vesturlandi, en minnst á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og á höfuðborgarsvæðinu.
Mannfækkunin stafar af miklum búferlaflutningum frá landinu.
A undanförnum fimm árum varð íbúafjölgunin mest á Suðurnesjum, en á höfuðborgar-
svæðinu og Suðurlandi hefur fjölgað lítillega meira en sem nemur landsmeðaltali, en lítil-
lega undir landsmeðaltali á Vesturlandi. A Austurlandi og Norðurlandi eystra fjölgaði
talsvert minna en sem nemur landsmeðaltali. Á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra varð
fólksfækkun á síðustu fimm árum.
Þann 1. janúar 2010 voru á landinu 1.014 karlar á móti hverjum 1.000 konum.
Kynjahlutfallið hafði því jafnast, en vegna mikils aðflutnings erlendra karlmanna á
árunum 2005-2008 hafði það raskast mjög. Ójafnast var hlutfallið 1. janúar 2008 þegar
það var 1.041 karl fyrir hverjar 1.000 konur.
Ibúaþróun á einstaka landsvæðum
Árið 2009 fækkaði íbúum á öllum landsvæðum, þó einna minnst á Vestfjörðum og
Norðurlandi vestra. Það er breyting frá fyrri árum en fólksfækkun hefur jafnan verið
mest á þessum tveim landsvæðum. A Vestfjörðum fækkaði um 23 einstaklinga en um sjö
manns á Norðurlandi vestra. Það jafngildir um 0,3% fækkun á Vestfjörðum en 0,1% í
Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum.
Fólksfækkun var mest á Austurlandi, 390 manns eða 3,0% frá 1. janúar 2009. Þar á eftir
kom Vesturland, en þar fækkaði um 2,1% eða 337 manns. Á Suðurlandi fækkaði um 1,1%
eða 271 einstakling, og 0,9% á Suðurnesjum eða um 185 íbúa. Á Norðurlandi eystra
fækkaði um 0,6% eða 181 íbúa. Hlutfallslega var fækkunin næstminnst á höfuðborgar-
svæðinu, en þar fækkaði um 0,2% eða 311 íbúa.
Þegar litið er til síðustu fimm ára blasir nokkuð önnur mynd við. Þá eru Suðurnes tölu-
vert fyrir ofan landsmeðaltal með 4,5% árlega fjölgun. A höfuðborgarsvæðinu fjölgaði
rétt ofan við landsmeðaltal, 1,7% á ári að meðaltali, sem og á Suðurlandi, þar sem fjölgaði
um 1,8% á ári. Árleg fjölgun á Vesturlandi síðustu fimm ár var nokkuð undir landsmeðal-
tali, eða 1,3%, en á Norðurlandi eystra og Austurlandi nam árleg fjölgun aðeins 0,3% á
hvoru landsvæði um sig. Á síðustu fimm árum hefur árleg fækkun á Vestfjörðum verið
0,9% en 0,5% á Norðurlandi vestra.
9 4
Arbók VFl/TFl 2010