Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 88
Fjárhagsstaða heimilanna 2004-2009
Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum
með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í van-
skilum með önnur lán á sama tímabili. Árið 2009 áttu 39% heimila erfitt með að ná endum
saman. 15% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og svipað hlutfall heimila taldi
greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána/leigu vera þunga. Tæp 30% heimila gátu í
ársbyrjun 2009 ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 130 þúsund með þeim leiðum
sem þau venjulega nýta til að standa undir útgjöldum. Þegar heildarmyndin er skoðuð
er fjárhagsstaða heimilanna verri í ársbyrjun 2009 en næstu ár á undan.
Við nánari greiningu kemur fram að einstæðir foreldrar voru helst í fjárhagsvandræðum
í ársbyrjun 2009. Þessi hópur virðist eiga í meiri erfiðleikum en annars konar heimili.
Meðal einstæðra foreldra höfðu 18,1% lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu í árs-
byrjun 2009 og 17,7% einstæðra foreldra voru í vanskilum með önnur lán. 59 3% gátu
ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 130 þúsund. Barnlaus heimili þar sem búa
fleiri en einn fullorðinn stóðu best fjárhagslega í ársbyrjun 2009.
Árið 2009 stóðu tekjuhæstu heimilin best að vígi en þau tekjulægstu voru í mestum
erfiðleikum. Samt sem áður voru tekjuhæstu heimilin ekki laus við vandamál því 2,5%
þeirra höfðu lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu og 3,3% höfðu lent í vanskiíum
með ónnur lán. 10% tekjuhæstu heimilanna gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum að
upphæð 130 þúsund og 14,3% áttu erfitt með að ná endum saman. Sambærilegar tölur
fyrir tekjulægstu heimilin eru 12,5% í vanskilum með húsnæðislán/leigu, 17,7% í van-
skilum með önnur lán, 48,2% gátu ekki mætt óvæntum útgjöldum og 55,7% áttu erfitt
með að ná endum saman.
Þegar horft er til meðalaldurs fullorðinna einstaklinga virðast heimili með meðalaldurinn
30-39 ára vera í mestum erfiðleikum. Árið 2009 töldu þessi heimili greiðslubyrði hús-
næðislána/leigu og annarra lána þunga og lentu fremur en önnur heimili í vanskilum
með húsnæðislán/leigu og önnur lán. Jafnframt áttu heimili 30-39 ára erfiðast með að ná
endum saman en 48,8% heimila úr þessum hópi töldu það vera erfitt. Heimili þar sem
meðalaldur var lægri en 30 ára eiga í mestum vandræðum með að mæta óvæntum út-
gjöldum og þar á eftir kemur hópurinn 30-39 ára. Aldurshópurinn 50-59 ára stendur að
jafnaði best þegar kemur að því að mæta óvæntum útgjöldum. Almennt má segja að því
hærri sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga er á heimilinu því betur virðast heimilin
vera stödd fjárhagslega.
Fjöldi heimila
í ársbyrjun 2009 var metinn fjöldi heimila á íslandi 126.100 samkvæmt lífskjararannsókn
Hagstofunnar en þau höfðu verið 111.200 árið 2004. Meðalfjöldi einstaklinga á heimili var
metinn 2,5 allt tímabilið nema árið 2009 þegar meðalfjöldi heimilismanna var 2,4. Hafa
ber í huga að upplýsingar um fjölda og stærð heimila eru byggðar að hluta til á könn-
unargögnum og því er nokkur óvissa um metinn fjölda.
Helstu niðurstöður
Þegar heildarmyndin er skoðuð virðist árið 2004 hafa verið heimilum erfitt fjárhagslega
en síðan batnar staðan fram til ársins 2008. í byrjun árs 2009 má sjá áhrif efna-
hagsþrenginga á fjárhagsstöðu heimilanna er staðan versnar á ný.
Á myndum efst á næstu síðu má sjá að heimilunum gengur betur að standa í skilum með
husnæðislán/leigu en með önnur lán en samt sem áður virðast bæði húsnæðislán/leiga
og önnur lán vera álíka mikil byrði fyrir heimilin. Byrði bæði húsnæðislána/leigu og
annarra lána vex verulega milli áranna 2008 og 2009. Hafa ber í huga að hlutfall þeirra
8 6
Arbók VFl/TFl 2010