Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 171
Nýsköpunarmiðstöð
íslands
nýsköpun og nýir tímar
— ( ~~ ^
Berglind Hallgrímsdóttir er framkvæmdastjóri Impru á Nýsköpunarmiðstöð (slands. Hún er fædd á Akureyri árið 1968. Hún er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og lauk M.Sc .(Econs)-gráðu frá London School of Economics á sviði Ujórnsýslu og stjórnunar árið 1995. Berglind hefur unnið að nýsköpun, atvinnusköpun og stuðningi við lítil og meðal- stór fyrirtæki á ýmsum vettvangi um árabil. Hún hefur unnið á vettvangi norræns samstarfs og stjórnað norrænum og övrópskum þróunarverkefnum á sviði nýsköpunar, þekkingaryfirfærslu og klasasamstarfs. Berglind hefursetið Ifjölda nefnda og stjórna á sviði nýsköpunar- og atvinnumála. A
Þorsteinn Ingi Sigfússon er forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar (slands. Hann er fæddur I Vestmannaeyjum árið 1954. Þorsteinn nam eðlisfræði I Kaupmannahöfn og Cambridge og lauk doktorsprófi frá Cambridge háskóla 1983. Hann Þefur verið prófessor við Háskóla (slands frál 989. Sérsvið hans er eðlisfræði þéttefnis, einkum málma og melmis, auk orku. Þorsteinn hefur verið mikilvirkur I rannsóknum á málmum og melmum, tæknilegri eðlisfræði og orku, einkum endurnýjanlegri orku og orkuberum. Hann hefur staðið að stofnun fjölmargra sprotafyrirtækja. Þorsteinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga á ferli slnum. Hann hlaut riddarakross hinnar (slensku Fálkaorðu 2004 fýrir rannsóknir og tengsl stvinnullfs og rannsókna.l kjölfar tilnefningar rússnesku vísindaakademíunnar hlaut Þorsteinn alheimsorkuverðlaunin Global Energy Prize árið 2007. ( N ! & H
Nýsköpun og þekkingaryfirfærsla
Samkeppnishæfni er mælikvarði á hæfni þjóða og fyrirtækja til að takast á við alþjóðlega
®amkeppni og um leið mælikvarði á árangur í verðmætasköpun. Samkeppnishæfni er
it'tingarmynd ýmissa lykilþátta, svo sem menntunarstigs, framleiðni, tæknilegrar getu,
emahagslegs stöðugleika og nýsköpunar.
Jsland er, þegar þetta er ritað haustið 2010, í 31. sæti í samkeppnisvísitölu Alþjóða efna-
^gsráðsins (World Economic Forum, WEF) 2010-2011, en á árabilinu 2006-2007 var
í 14. sæti. Fallið er hátt og staða þjóðarinnar hefur veikst. Framleiðni er lág á
i og um árabil hafa fáar hátekjuþjóðir þurft að hafa eins mikið fyrir lífsgæðum og
ingar1. Aðrir veikleikar íslensks hagkerfis eru einhæfar stoðir útflutnings og
j^þklar sveiflur í hagkerfinu. Á meðan íslendingar glíma við þessa stöðu hægir hvergi á
jóli alþjóðlegrar samkeppni sem er síaukin og síbreytileg á öllum sviðum.
ísland
^slend
%sköpun er eina svarið við alþjóðlegri samkeppni. Alþjóðlegar rannsóknir styðja þessa
Uilyrðingu. Stjómvöld og sérfræðingar víða um heim hafa ályktað á þennan veg. Fram-
^Vaemdastjórn Evrópusambandsins er á sama máli. Allir eru sammála um að nýsköpun
J gífurlega mikilvæg undirstaða hagvaxtar og almennrar velsældar. Vandinn er að það
ru ekki allir sammála um nákvæma skilgreiningu nýsköpunar og alltof fá fyrirtæki,
£eði hér á landi og erlendis, vinna að innleiðingu nýsköpunar með skipulögðum og
^ efnumiðuðum hætti. Rannsóknir sýna að jafnvel í framsæknum fyrirtækjum með skýra
emu eru tiltölulega fáir sem vinna eftir útfærðri nýsköpunarstefnu2.
1
2
BJ'örn Rúnar Cuðmundsson.2010.Efnahagsskilyrðiog fjármálamarkaður. Efnahags- og viðskiptaráðuneytið.
^olcott, R.C. et al. 2010. Grow from within, Mastering Corporate Entrepreneurship and Innovation. New York. McGraw Hill.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana |169