Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 35
1-3.2 Skýrslur sameiginIegra nefnda TFÍ/VFÍ
starfsárið 2009-201 0
Útgáfunefnd VFÍ og TFÍ
Starfsemi útgáfunefndar var með hefðbundnum hætti á síðastliðnu starfsári. Ein breyting
a skipan hennar. Ólafur Pétur Pálsson, sem setið hafði í nefndinni í sex ár, hætti og
i hans stað kom Bjarni Bessason sem jafnframt tók við formennsku. Ólafi Pétri eru
pökkuð vel unnin störf. Aðrir fulltrúar útgáfunefndar eru Kristinn Andersen frá VFÍ,
Arni Þór Arnason og Óli Jón Hertervig frá TFÍ og ritstjóri Árbókarinnar, Ragnar
Ragnarsson.
Arbók VFÍ/TFÍ 2009 kom út í lok nóvember 2009 og var að þessu sinni 349 síður. Eftir
avorp formanna VFÍ og TFÍ og inngang ritstjóra er kafli sem fjallar um félagsmál félag-
anna tveggja, sameiginlegan rekstur þeirra og lokaverkefni nemenda við háskólana tvo
en auk þess er listi yfir nýja félaga. Þar á eftir er tækniannáll, þar sem fjallað er um þróun
efnahagsmála, orkuveitur (framkvæmdir), eldsneytisspá fyrir 2008-2050, hafnar-
framkvæmdir, Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og vegamál. Því næst eru
kynningar og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana, í allt átján talsins. Þá eru þrjár rit-
ryndar vísindagreinar birtar að þessu sinni, en þær hafa ekki verið færri í meira en tíu ár.
Þessum greinum hefur fækkað jafnt og þétt frá árinu 2007 og er það ákveðið áhyggjuefni.
Loks voru í Árbókinni 14 tækni- og vísindagreinar um margbreytileg viðfangsefni.
xagnari Ragnarssyni er þakkað gott samstarf og styrk ritstjórn. Fjöldi útgefinna eintaka
var 2430.
Alls komu út sjö tölublöð af Verktækni á árinu 2009 en undanfarin ár hafa verið gefin út
iu blöð á ári. Astæða þess að færri tölublöð voru gefin út er samdráttur á auglýsinga-
markaði en prentvinnsla og dreifing blaðsins er fjármögnuð með auglýsingum. Upplag
blaðsins var hið sama og áður eða 3.300 eintök. Er því dreift til allra félagsmanna VFÍ, TFI
°n ^ au^ fyrirtækía' fjölmiðla og helstu stofnana. Verktækni hefur verið vettvangur fyrir
alla verkfræðinga og tæknifræðinga að koma sínum sjónarmiðum og hugðarefnum á
rramfæri. Eins eru birtar í því fróðlegar greinar um ráðstefnur og skoðunaferðir félag-
anna, auk viðtala um áhugaverð efni. Verktækni er einnig vettvangur stjórna félaganna
Pri8gja' VFÍ, TFI og SV, að koma nauðsynlegum upplýsingum til félagsmanna. Sigrún
Hafstein var ritstjóri blaðsins, eins og undanfarin ár, og er henni þakkað ánægjulegt sam-
starf á liðnu starfsári. I blaðnefnd voru þau María S. Guðjónsdóttir frá SV, Bjarni Bessason
tra VFl og Arni Þór Arnason frá TFÍ. Útgáfunefnd þakkar öllum hlutaðeigandi samstarfið
og biður félaga og aðra að koma til hennar ábendingum og tillögum að því sem ef til vill
betur mætti fara.
Bjarni Bessason formaður
Endurmenntunar- og símenntunarnefnd VFÍ,TFÍ, AV og SV
Endurmenntunar- og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ, AV og SV (ENSÍM) starfar að endur-
jÞenntunarmálum félaganna. Á starfsárinu voru haldnir fundir með starfsmönnum
Lndurmenntunar Háskóla íslands um leiðir til að auka framboð af námskeiðum fyrir
3 3
Félagsmál VFÍ/TFÍ