Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 82
Utanríkisverslun með vörur 2009
Árið 2009 voru fluttar út vörur fyrir 500,9 milljarða króna en inn fyrir 410,6 milljarða
króna. Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd í fyrsta skipti síðan 2002 sem nam
90,3 milljörðum króna en 6,7 milljarða króna halli var árið 2008. Verðmæti útflutnings
jókst um 7,3% frá fyrra ári á verðlagi hvors árs en innflutningur dróst saman um 13,3%.
Sjávarafurðir voru 41,7% alls útflutnings, í annað sinn í röð með minni hlutdeild en
iðnaðarvörur. Verðmæti þeirra jókst um 21,8% frá fyrra ári á gengi hvors árs, iðnaðar-
vörur voru 48,6% alls útflutnings og jókst verðmæti þeirra um 0,2% á gengi hvors árs.
Stærstu vöruflokkar innflutnings voru hrá- og rekstrarvörur með 31,4% hlutdeild, fjár-
festingarvörur með 21,1% hlutdeild og neysluvörur aðrar en mat- og drykkjarvara með
15,5% hlutdeild. í krónum talið varð mestur samdráttur í innflutningi hrá- og rekstrar-
vara, flutningatækja og fjárfestingarvara. Mest var flutt inn frá og út til Evrópska efna-
hagssvæðisins, EES, 83,5% útflutnings fór þangað og 64,8% innflutnings kom þaðan.
Stærstu viðskiptalönd voru Holland í útflutningi, 30,7% af heild, og Noregur í innflutn-
ingi, 13,0% af heild.
Vöruskiptajöfnuður
A árinu 2009 nam verðmæti vöruútflutn-
ingsins í heild 500,9 milljörðum króna fob,
heildarvöruinnflutningur cif nam 446,1 millj-
arði, útflutningur umfram innflutning á
árinu 2009 varð því jákvæður um 54,7 millj-
arða. Halli hefur verið á utanríkisverslun-
inni allan þennan áratug að árinu 2009
undanskildu þegar afgangur var 10,9% af
útflutningsverðmæti. Hallinn hefur verið
um 1,6% af útflutningsverðmæti árið 2002,
upp í 78,0% árið 2006. Hallinn á vöruskipt-
unum var 10,3% árið 2008, 40,8% árið 2007
og 61,5% árið 2005.
Vöruskiptajöfnuður er reiknaður út frá fob-
verði bæði innflutnings og útflutnings. Inn-
flutningur fob nam 410,6 milljörðum króna
og var vöruskiptajöfnuðurinn 2009 því
hagstæður um 90,3 milljarða. Vöruskipta-
jöfnuður fob við útlönd á verðlagi hvers árs
hefur verið hagstæður einu sinni áður á síð-
ustu tíu árum, þ.e. árið 2002, 1,6% af vergri
landsframleiðslu. Hallinn var mestur árið
2006, 13,6% af vergri landsframleiðslu. Árið
2009 var afgangur 6,0% af vergri landsfram-
leiðslu. Á efri myndinni hér til hliðar má sjá
vöruskiptajöfnuð sem hlutfall af útflutningi
og vergri landsframleiðslu og á þeirri neðri
má sjá þróun útflutnings fob, innflutnings
fob og vöruskiptajafnaðar fob.
Mynd á næstu síðu sýnir hlutfall útflutn-
ings og innflutnings vöru af vergri lands-
framleiðslu yfir 49 ára tímabil. Þar sést að
hlutdeild útflutnings og innflutnings hefur
lengst af verið um og yfir fjórðungur af
landsframleiðslu. Þó jókst hlutdeild inn-
8 o
Arbók VFf/TFf 2010