Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 13
Stefnir] Karlmennska og gleði Hannesar Hafsteins .. .
13-
undir framfarir. Forn Grikkir litu
þó svo á, að söngur styddi að sigri.
Þeir léðu eitt sinn haltan mann ná-
grönnum sínum], sem báðu sér lið-
yeislu. Hann var skáld og lagði
þeim lið með hersöngvum, svo að
þeir sigruðu óvini og voru þó fá-
mennari. Bölbænir í ljóðum hafa
þótt áhrifaríkar engu síður en eggj-
ana kvæði. Ákvæðaskáldið í Svan-
hvít er til vitnis um það. Feðgar
tveir heimsóttu konung og drottn-
ingu og sungu kvæði. Konungi þótti
drottning sín líta hýrt til unga
mannsins og lagði hann þá svein-
í gegn. Gamli söngvarinn bannsöng
þá morðingjann í hásætinu og til
áréttingar sló hann fiðlu sinni og
braut hana við hallarmúrinn. Kon-
ungsætt þessi varð fyrir ósköpum,
svo að hún leið undir lok. Og
„Sú mikla liöll ev horfin
og hennar sér ei stað ...
„Það sannar vora sögu
um söngsins undra mátt' ‘.
Þetta gæti verið þjóðsaga. En
hún sýnir þá trú manna á þann
mátt, sem kveðandi og sönglist og
hörpuslætti er gefinn.
H. H. óskaði þess í kvæði, að
hann gæti breytt sér í hlýjan
hringstraum, sem tekið gæti í
faðm sér allt landið, svo að eydd-
ist ís en ykist blóm. Hugmyndin
minnir á Golfstrauminn, sem hefir
Fjallkonuna í faðmi sínum. —
Stjórnmálamanninum H. H.
tókst í reyndinni að uppfylla óslc
skáldsins, þó að í breyttri mynd
væri — þegar hann kom til leið-
ar símalagningu til landsins og
um það. ísland færðist þá í raun
og veru suður á bóginn. Svo má
að orði kveða, að það þokaðist
nær sjálfri Evrópu. Gleðirík karl-
mennska þíðir klaka — ís hjart-
ans, sem H. H. segir í kvæði, að
sé verri en hafís. Og lundin þessi
kann að rækta blóm um hávetur,
innan veggja og við brjóstyl Fjall-
konunnar.
Ég ætla að það megi til sanns
vegar færa, að skáldið H. H. hafi
blásið í Heimdallshorn og vakið
þjóðina til dáða. Kveðandi hans
snerti strengi í brjóstum manna.
— Hann mætti kalla vekjara í
stundakluldíu aldanna vor á meðal.
Heróp hans er þetta:
lieilir hildi frá!
Heilir liildar til!
koma hermenn vorgróðurs Isalands^
Guðmundur Friðjónsson.