Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Side 27
Stefnir]
Hvaðan er fjárkreppan?
27
Útflutt.
1928 .......................... 80 niillj.
1929 .......................... 74.2 —
1930 brb. 57.1+ ca. 4 . ca. 61.1 —
1931 — 45.4 + — 4 . — 49.4 —
Innflutt.
1928 .......................... 64.4 millj.
1929 .......................... 77.0 —
1930 brb. 63 + ca. 4. . ca. 67 —
1931 — 3S + — 4. . — 42 —
Um tvö síðari árin eru ekki til
nema bráðabirgðartölur, en nærri
lætur, eftir fyrri reynslu, að bæta
megi við hverja tölu um 4 millj-
ónum króna, eins og hér er gert.
Lítum nú ofurlítið nánar á
})essa skýrslu.
Árið 1928 er mjög hagstætt.
Mikils er aflað, og verzlunin er
hagstæð. Útflutningur nemur þá
15,6 miljónum meiru en innflutn-
ingur, og hefir það ár því gefið
vafalaust einar 10 miljónir um-
fram. Þetta ár borgar stjórnin
um 141,4 miljón úr ríkissjóði.
Næsta ár, 1929, er einnig hag-
.stætt. Mikils er aflað, og verð-
lag er gott. Þó er útflutningur þá
töluvert minni að verðmæti. —
Birgðir í landinu voru þá að
vísu dálítið meiri, en ekki hefir
J)að numið meiru en í hæsta lagi
1 miljón króna. — En það er
annað fyrirbrigði, sem nú ber á,
og það er geysilegur innflutning-
ur, svo að árið kemur út með
nærri því 3 milljóna halla á
verzlunarskýrslum, og má ugg-
laust telja raunverulegan halla
þetta ár að minnsta kosti 8 millj-
ónir. — Þetta þarf þó alls ekki
að vera neinn voði út af fyrir
sig. Góðærið veldur því, að menn
framkvæma ýmislegt það, sem
þörf er á, og svo aukast viðskifti
öll. Það er miklu meira verðmæti
til í landinu af húsum, vélum,
skipum, vörum 0. f 1., en áður. —
En þegar svona er komið, má
vara sig, því að nú er hætt við
ógegndinni. En stjórnin hækkar
útborganir sínar þetta ár um 4
milljónir, upp í 18,4 milljónir.
Svo kemur 1930. Árið er enn
afar-mikið aflaár, og verð er gott
framan af. En svo kemur verð-
fallið. Kjötið heldur sér lengst,
eða fram að árslokum. Ullin fer
í lægsta verð síðan á aldamót-
um, gærur fara niður í einn
þriðja fyrra verðs. Fiskur hrap-
ar úr 120 krónum skpd. í 75
kr. í árslokin og labradorfiskur
úr 93 í 56. ísfiskur verður líka
miklu lægri. Meðalfarmur verður
£ 922 eða £ 200 lægri en næsta
ár á undan, sem þó þótti lágt. —
Þó að þetta væri mesta aflaár,
sem komið hefir (441000 skpd.)
varð útflutningurinn ekki nema
61.1 millj. eftir því sem næst