Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 67
Stefnir]
Fjármeðferð stjórnarinnar.
67
þús. kr., en hefir á undanförnum
4 árum notað til hælisins 300.000
kr. að meðtöldum rekstrarkostn-
aði, sem líklega er 10—15 þús.
kr. á ári. Hitt hefir farið til húsa-
bygginga og jarðakaupa og er
það meira en tvöfallt hám.ark
þess, sem þingið ákvað.
4. Sem fjórða dæmi má nefna
Reykjahælið í Ölfusi. Til þess
hafa verið notaðar 270000 kr. að
meðtöldu andvirði Reykjatorf-
unnar, en heimili þingsins er að-
eins 150000 kr. Hér er rétt að
geta þess, að um 50000 af þess-
um kostnaði var fært til gjalda
á reikningum Landsspítalans og
er það náttúrlega bein fölsun á
reikningum hans.
Hinn takmarkaði tími leyfir
mér ekki að nefna fleiri dæmi til
sönnunar því, að í raun og veru
hefir stjórnin í algerðu heimild-
arleysi tekið fjárveitingavaldið
af þinginu og afhent það sjálfri
sér. — Fjárveitinganefndin, 7
manna nefnd, hefir undanfarinn
mánuð setið yfir fjárl.frv. fyrir
1933 og verið að hnitmiða niður
fjárveitingar með mestu ná-
kvæmni. Eg get ekki neitað, að
mér hefir oft dottið í hug, að það
væri til lítils að vera að þessu, ef
stjórnin virðir svo allt að vett-
ugi eins og undanfarin ár. Þó er
skylt að geta þess, að nýlega hef-
ir verið skift um fjármálaráð-
herra og er óreynt, hversu hinn
nýi ráðherra heldur á fjárlögun-
um.
Um árið, sem yfir stendur, er
af minni hálfu lítið að segja,
enda veit eg ekki hvað hæstv.
stjórn ætlast fyrir um fram-
kvæmdir. Hins vegar lét eg það
í ljósi á þinginu í fyrra, er fjár-
lög yfirstandandi árs voru til
meðferðar, að eg teldi mjög hæp-
ið, að hægt væri að halda jöfnuði
ef það væri framkvæmt, sem f jár-
lög ráðgera. Og síðan hefir út-
litið sannarlega ekki batnað.
Fjárlagafrv. það, fyrir 1933,
sem hér er til meðferðar, gerir
ráð fyrir hærri gjöldum en nokk-
urt annað fjárlagafrv., sem lagt
hefir verið fyrir þingið, fyr eða
síðar og sýnist mér það bera vott
um allt of mikið bjartsýni einmitt
nú, þegar hrammur kreppunnar
kreistir sem harðast. Þó verður
að viðurkenna það, að talsverða
i hefir hæstv. fjármála-
ráðherra gei-t til niðurfærslu, þó
að það, að mínu áliti, sé alls ekki
nóg. Á það verður líka að líta, að
langmestur hluti útgjaldanna er
lögbundinn, svo að nægilegur
niðurskurður mun ekki fást nema
með breyttri löggjöf. Það er ein
5*