Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Side 69
Stefnir]
Fjármeðferð stjórnarinnar.
69
fjölda. Meðan svo er, erum við
Sjálfstæðismenn eigi fúsir til við-
tals um skattahækkun. Við
heimtum fyrst þá niðurfærslu
gjaldanna, sem er kleif. Síðan
þær breytingar á gjaldalöggjöf,
sem fært er. Þegar þetta er gert,
þá, og þá fyrst, erum við til við-
tals um frekari aðgerðir, þó' að
því tilskildu, að sinnt sé því rétt-
lætismáli, sem nú er harðast bar-
ist um.
Stjórnin hefir stofnað 15—16
ný löggæsluembætti. Vill hún af-
nema þau og með því spara 70
—80 þús. kr. á ári?
Hún hefir stofnað 2 eða 8 em-
bætti við bifreiðaeftirlit með
6000 kr. launum hvort. Vill hún
afnema þau og fara eftir þar að
lútandi lögum?
Hún hefir stofnað embætti á
Þingvöllum til eftirlits þar. Vill
hún afnema það? Starf þess
manns er sama og ekkert.
Hún hefir búið til mörg em-
bætti í stjórnarráðinu, eg held
7—8. Vill hún fækka þeim, svo
að lækki launagreiðslurnar í
stjórnarráðinu? Það mundi ekki
af veita, því að sá kostnaður
hækkaði 1930 um rúmlega 34000
kr. eða nærri 30%.
Vill stjórnin afnema kennslu-
prófastsstörfin ?
Vill stjórnin láta Lárus H.
Bjarnason fá aftur embætti sitt
í Hæstarétti, sem hún svifti hann
að ástæðulausu? Með því má
spara 9—10 þús. kr. á ári.
Vill stjórnin hætta að greiða
sumum embættismönnum miklu
hærri laun en lögákveðið er?
Vill stjórnin selja eitthvað af
bifreiðunum, sem hún hefir keypt
undanfarið og hætta að kaupa
nýjar?
Vill stjórnin yfirleitt draga úr
starfsmannahaldinu ?
Vill hún hætta að gefa út rán-
dýr skrumrit um sjálfa sig og
níðrit um andstæðingana, hvoru-
tveggja á ríkisins kostnað?
Vill stjórnin hætta að greiða
stórar fjárfúlgur í heimildar-
leysi?
Vill stjórnin hætta að gefa af
fé ríkisins eins og átti sér stað
um 8000 kr. af björgunarlaunum
fyrir togarann ,,Ohm“?
Vill stjórnin hætta að veita
fylgismönnum bitlinga úr ríkis-
sjóði?
Vill stjórnin hætta þessum ill-
ræmdu nefndarskipunum, sem á
síðustu árum hafa kostað ríkis-
sjóð mikið á 2. hundrað þús. kr.?
Vill forsætisráðherra hætta að
taka sérstaka borgun úr ríkis-
sjóði fyrir nefndarstörf ofan á