Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Qupperneq 87
Stefnir] Tvær greinar um atvinnuleysi og atvinnubætur.
87
Það er óþarfi
að leita lengur. Hér er úr mestu að
velja, beztu og ódýrustu vörurnar.
Glervöru- og vefnaðarvörudeild
Edinborgar.
Hafnarstræti 10—12 Reykjavík.
virðast því miður fæstir. hugsa.
Það er eins og margir beinlínis
hatist við þá hugsun, að hvert
þjóðfélag verður að eignast sí-
aukið fjármagn, og allt sé gert
til þess, með sköttum og öðru,
að koma í veg fyrir auðmyndun.
Fjármgansskortur á því ekki lít-
inn þátt í atvinnuleysinu. Rík-
ið dregur úr mönnum kjarkinn
við fyrirtækin með því að skatt-
pína þá, og svo þegar þetta dreg-
ur til atvinnuleysis, þá er gripið
til ráðstafana, sem enn kosta
aukna skatta. Þetta er svika-
mylla, sem allar þjóðir Settu að
forða sér frá eins fljótt og auðið
er.
Hugsum oss, að ríkið fái pen-
inga til þess að byggja veg, með
því að hætta við að byggja ann-
an veg, þá liggur í augum uppi,
að með þessu er ekkert gert til
þess að auka atvinnu. En alveg
þetta sama er í raun og sann-
leika að gerast, þegar ríkið byrj-
ar að byggja veg, án þess að
hætta við nokkuð annað. Það
verður alveg jafnt að taka fé
til þess, og þ.að fé verður ekki
tekið nema frá einhverju öðru
fyrirtæki. Menn svara að vísu,
að ríkið geti náð fénu með því
að skattleggja ohófseyðslu þeirra
ríku. Þetta getur látið vel í eyr-
um, en það er fals. Því að hvort