Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Side 53
Stefnir]
Nokkrar leiðbeiningar í rafmagnsnotkun.
53
í því að notagildið er þar reiknað
0,8 í stað 0,9, sem er mjög al-
gengt, og sumpart í því, að afl-
ið er látið vera í notkun einnig
þann tíma, sem skift er um í pott-
unum. I þriðja lagi kemur það
hér fram síðar, að tekin er ríf-
leg tala til brauðbaksturs alla
daga, svo að þetta alt vinnur hitt
vel upp, að svo miklu leyti sem
nær til algengrar suðu.
Eg hefi hér á undan slegið
föstu um tilhögun máltíðanna, en
vel má vera, að þeim sé nokkuð
öðruvísi fyrir komið sumstaðar.
Það breytir þó í rauninni engu
um aflþörfina, aðeins að þá fell-
ur notkunin á annan tíma dags-
ins.
Eftir því sem nú hefir verið
bent á, verður rafmagnsnotkun
þessa heimilis á sólarhring þessi:
Klukkan 23— 7 = 8 klukkustundir 820 wött, gerir 6,6 kwst.
— 7-11 =4 — 1710 — - 6,84
— • 11—15 = 4 — 1000 - - 4,00
— 15-23=-8 — 320 - — 2,56
20,00
4- 32
Samtals 20,32 kwst.
Við þetta vil eg þó bæta 2 kw-
st., t. d. fyrir kaffihitun að kveldi,
og 3.67 kwst. til brauðbaksturs,
þannig, að öll eyðslan verði til
jafnaðar 26 kwst. á sólarhring,
til suðu og ljósa ásamt bökun. Er
það há tala, þegar athugað er,
að ýmsir halda fram, að þessi
fjölskylda ætti að komast af með
um 12 kwst.; að vísu er þá ætl-
ast til, að notuð sé moðsuða, enda
ætti enginn að vera án þess að
hafa hana, hvort heldur hann
notar kol eða rafsuðu. Þó hefir
ekki verið reiknað með því hér
að framan.
Af þeim 2 kw., sem fjölskyldu
þessari voru ætluð, fær maður þá
22 kwst. á sólarhring afgangs
suðu, ljósum og bökun, þennan
skammdegisdag, og má nota það
til upphitunar. Nú er algengt að
áætla gangtíma smástöðva á ári
um 7000 klukkust. og segir það, að
þessi 2 kw., sem við höfum hér
til umráða, ættu að veita 14000
kwst. á ári; nú mun það ekki
vera fjarri sanni að áætla, að hér
á landi séu ca. 200 dagar ársins,
sem maður þarf einhverja upp-
hitun, auðvitað þó mismunandi
eftir húsakynnum -og veðurfari.