Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Side 44
Japanar í Mansjúríu.
44
fStefnir
Borgarhlið í Múkden. Ágœtt og fagurt dœmi upp á kínverska bgggingarlist.
ekki tekizt. Sama er að segja um
sykurrækt. Landið hefir verið tal-
ið ágætt til sykurrófna ræktunar.
Suður-Mansjúríu járnbrautin hef-
ir sett stórfé í það, að koma þess-
ari sykur-rækt upp, þannig að
Japan geti fengið allan sinn syk-
ur „heima‘‘. En, hvað sem veld-
ur, hefir þetta ekki tekizt. Það er
mikið fé, sem til þess fer, en hér
er líka um að ræða baráttu fyr-
ir miklum hagsmunum.
Einn örðugleikinn, og það ekki
sá minnsti, er stjórnarfar Kín-
verja í landinu og venjur, eða
réttara sagt óvenjur. Þegar þar
við bætist óvild til Japana, verð-
ur þetta æði ógaman fyrir þá
menn, sem eiga fé sitt og viður-
væri undir þessum mönnum. Þess
eru ekki fá dæmi, að yfirvalda-
skipun komi um það, að láta af-
henda megin hluta uppskerunnar
handa einhverjum, sem þá er í
hernaði, og allt er borgað með
gersamlega verðlausum steðlum-