Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Blaðsíða 62
62
Fjármeðferð stjórnarinnar.
[Stefnir
dýrtíðin minkað stórkostlega, og
samt eru gjöldin 1930 um það bil
tvöfalt hærri en 1921.
Fjárausturinn undanfarið er
mikið mein. Þeim sem óhlutdrægt
vilja líta á þetta mál, mun sýn-
ast, að stjórhinni hefði átt að
nægja að fá til þarfa ríkissjóðs-
ins á 4 árum yfir 16 milj. kr.
meira en þingið áætlaði, svo að
ekki hefði þurft áð taka hin
miklu lán. Sextán miljónir króna
er mikil upphæð á okkar mæli-
kvarða. Til samanburðar má' geta
þess, að allar jarðeignir og öll
hús í öllum 23 sýslufjelögum
landsins eru eftir gildandi jarða-
mati metin á rúmlega 46 milj. kr.
Tekjur ríkissjóðs hafa því verið
þessi 4 ár yfir 16 milj. kr. meiri
en matsverð allra jarða og allra
húsa í öllum sveitum og öllum
kauptúnum landsins. Það er í
rauninni stórmerkilegt, að þjóð-
in skuli hafa lyft því Grettistaki
af inna af hendi öll þessi gjöld.
Þó má það kannske kallast enn
merkilegra, að ekki einu sinni
þetta nægði stjórninni, heldur
varð hún að taka yfir 15 milj. kr.
lán á þessum sömu árum.
Jafnan þegar stjórnin er og
hefir verið vítt fyrir eyðsluna,
hefir hún haft eitt, og aðeins
eitt, svar. Hún kveðst hafa fram-
kvæmt svo mikið. Hún kveðst
hafa brynjað þjóðina gegn erfið-
leikum kreppunnar, svo að nú sje
miklu Ijettara að lifa og komast
yfir erfiðleika núverandi verð-
lækkunar. Þetta var eitt veruleg-
asta atriðið í nýársboðskap hæstv.
forsætisráðherra til hinnar ísl.
þjóðar í byrjun þessa yfirstand-
andi ái’s. Nú get eg skotið þessu
til þeirra, sem mál mitt heyra. Eg
bið þá hvern um sig að stinga
hendinni í eigin barm og svara
því, hvort þeim finst hæstv. stjórn
hafi útvegað þeim þá brynju til
kreppuvarna, sem stjórnin sjálf
gumar af. Hver og einn getur
svarað því fyrir sitt leyti, en eg
get sagt það fyrir mitt leyti, að
eg hefi ekki orðið brynjunnar
var. Eg veit það að sönnu, að
stjórnin hefir á undanförnum ár-
um eytt miljónum króna í bygg-
ingar af ýmsu- tæi. Eg veit, að
hún hefir látið reisa símastöð hér
í bænum fyrir nærri 2 milj. kr.,
eg veit, að hún hefir látið reisa
síldarbræðslustöð á Siglufirði fyr-
ir meira en l1/^ milj. kr., eg veit
að hún hefir látið reisa útvarps-
stöð fyrir um 700 þús. kr., eg veit
að hún hefir látið fullgera lands-
spítalann og varið til þess um 1
milj. kr., eg veit, að hún hefir
látið reisa hér mikla skrifstofu-