Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Qupperneq 50
50
Nokkrar leiðbeiningar í rafmagnsnotkun.
[Stefnir
en ef til vill mætti bæta úr því
með nokkrum línum og gera þá
jafnframt samanburð á hita-
gildi rafmagns, samanborið við
kol eða annað eldsneyti.
Við notkun kola og olíu er um
að gera, að fá sem fljótastan
hita.og að suðan taki sem stytzt-
an tíma. Mun það borga sig
bezt, einnig með tilliti til þess,
að konan, sem matinn eldar, er
svo bundin yfir pottinum.
Þessu er allt annan veg farið
þegar rafmagn er notað til suðu,
annað hvort frá eigin stöð eða
almennri stöð, þegar keypt er
víst magn fyrir árið, sem raun-
verulega er allt af gert, nema
þegar keypt er í gegnum mæli,
en það kemur því að eins til mála
(að kaupa eftir mæli), þar sem
um stöðug not er að ræða fyrir
það afl, er stöðin afkastar og
verður maður því að ganga út
frá hinu, sem sé að binda sig við
víst afl um árið. Veljum því
að byrja með 2 kw. sem notast
eftir því, sem síðar verður bent
á, af 8 manna fjölskyldu, á
þann hátt, að sem minnstur tími
fari forgörðum, því það er skil-
yrði fyrir samkeppnishæfileik-
um rafmagnsins, eins og síðar
mun verða bent á.
Til þess að hafa eitthvað a$
ganga út frá, ákveður maður
ljósþörf og suðuþörf á hvern
mann, enda eru þeir liðir eða póst-
ar nokkurnveginn ákveðnir, en þó
mun eg til frekara öryggis ogr
máli mínu til stuðnings hækka
þá tölu nokkuð, sérstaklega suðu-
þörfina, eða allt að 65%,
sem svarar til að þar sem aðr-
ir áætla að einn maður þarfnist
6 lítra af sjóðheitu vatni á sól-
arhring, þar vil eg reikna með
10 lítrum.
Eftir minni ákvörðun er notk-
unarþörfin sem hér segir:
a) Ljósþörf á mann hámark 40
wött.
b) Suðuþörf 10 lítrar af sjóð-
andi vatni á sólarhring.
a) fer að sjálfsögðu nokkuð
eftir húsakynnum.
Við höfum hér 8 manna fjöl-
skyldu. Hún þarfnast ljósmagns
8 X 40 = 320 wött og jafngild-
ir það að ljósmagni ca. tólf
14 lína olíulömpum, en eyðsla
þeirra lampa er um 1,6 líter
af góðri olíu á klukkustund.
Þessi sama fjölskylda notar 8 X
10 = 80 lítra af sjóðheitu vatni
á sólarhring, samkvæmt mínum
reikningi. Vilji maður nú hita
þessa 80 lítra frá 10—100 gr. á