Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Blaðsíða 58
FJARMEÐFERD STJORNARINNAR
Ræða Magnúsar Guðmundssonar á eldhúsdegi 1932.
Við fyrri hluta þessarar um-
ræðu, gat eg þess, að mér þætti
skýrsla hæstv. fjármálaráðherra,
um afkomu ríkissjóðs 1931 mjög
dapurleg. Síðan hann gaf þá
skýrslu hefi eg haft tækifæri til,
bæði að athuga þessa skýrslu
betur og skoða niður í kjölinn
áætlun hæstv. stjórnar um tekj-
ur og gjöld ársins 1933 og verð
eg að gera þá játningu, að dap-
urleikinn yfir hag og framtíðar-
afkomu ríkissjóðs hefir ekki
minkað í huga mínum við þessa
nánari athugun. Mér virðist út-
litið ákaflega skuggalegt og mér
sýnist allt benda til þess, að
hæstvirt stjórn hafi ekki nægan
skilning á hversu svart er fram-
undan. iÞessa ályktun dreg eg
af hinni ægilegu fjáreyðslu henn-
ar undanfarið, af áætlunum
hennar fyrir árið 1933 og af
hinum mikla fjölda nýrra skatta-
frumvarpa, sem komið hefir frá
henni og hennar liðsmönnum á
þessu þingi Eg hefi ekki kastað
tölu á þessu frv. en eg man, að 7
af þeim voru fyrir nokkru á dag-
skrá einn og sama daginn.
í þessu sambandi get eg ekki
látið vera, að minna á, að á
fyrsta þinginu (1928), sem nú-
verandi stjórnarflokkur réði lög-
um og lofum hér á þingi, voru
skattar hækkaðir svo, að nam
1 Ví> milljón kr. á ári. Þá var góð-
æri og eg man ekki til þess, að
síð.an hafi neinir skattar verið
lækkaðir. Nú er hin mesta
kreppa en samt vill hæstvirt
stjórn og hennar flokkur hækka
skatta enn stórlega. Nú spyr eg:
Hvar lendir, ef allt af á að
hækka skatta, hvort sem vel ár-
ar eða illa. Hver getur ímyndað
sér, að framleiðsla landsins þoli
stöðugt auknar álögur. Með
sama áframhaldi og verið hefir
verða skattþegnarnir þx*ælar stór-