Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 22

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 22
22 Hvaðan er fjárkreppan? [Stefnir ráðinu. Og eg er ekki í vafa, eft- ir talsvert ýtarlega athugun, að megin þunginn, sem þjóðin finn- ur nú hvíla á sér, er ekkert ann- að en syndapoki hennar sjálfr- ar, sem hún lagði á sig, þegar hún skifti um stjórn og forustu í kosningunum 1927. Til þess að breiða ekki yfir þann part af þessu leiða fyrir- brigði, kreppunni, sem er okk- ur ósjálfráður, ætla eg nú að draga upp örfáa drætti í mynd heimskreppunnar. — Þið kannist sjálfsagt við það, en það sakar ekki að rifja það upp. Eg vil þá fyrst byrja á því, sem skeði 26. sept. 1929. Þá féll fjármálaloftvogin allt í einu, og það með þeim hætti, að óhug sló á ýmsa. Englandsbanki hækkaði þann dag forvexti sína um 1%, og hafði þó áður á sama ári hækkað þá um 1%. — Eg man eftir því, að eg hitti kaupsýslu- mann einn hér í bænum næsta dag, og við ræddum nokkra stund um, hvaða ósköp mundu vera í vændum. Ekkert gerðist þó í svip. En mánuði síðar, seinustu dag- ana í október, heyrðist heldur en ekki brak. Það var verðbréfa- hrunið mikla á kauphöllinni í New York, líklega eitthvert stór- kostlegasta hrun af því tægi, sem sögur fara af. Og með þessu hruni, hrundi ameríska spila- borgin, þessi dæmalausa fræða- spilaborg um eðli velmegunar- innar. Sú kenning var þess eínis, að ameríska velmegunin ætti sér engin takmörk. Mikil framleiðsla og hátt kaup hlyti að fylgjast að upp á við í sífellu. Hærra kaup gerði meiri kaupgetu og hún orsakaði meiri framleiðslu. Aukin framleiðsla gerir mögu- legt enn hærra kaup, og það eyk- ur svo enn framleiðsluna. Það var sem sagt álitið, að búið væri að finna þarna upp svikamyllu til þess að máta með alla fátækt og örbyrgð. En svikamyllan reyndist bara venjuleg ,,svikamylla“. Eg ætla nú ekki að rekja slóð kreppunnar úti í heiminum, um bankahrunin í Þýzkalandi, verð- fall afurðanna og önnur kreppu- fyrirbrigði. En einkennilegt er að athuga það, að frá því að Eng- landsbanki gefur fyrsta viðvör- unarmerkið, 26. sept. 1929, líða h. u. b. nákvæmlega tvö ár, þar til er hann sjálfur verður að láta í minni pokann og gefast upp á gullinnlausninni, 21. sept. 1931.

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.