Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Qupperneq 33
Stefnir]
Hvaðan er fjárkreppan?
33
stjórnin eyddi fé umfram heim-
ildir fjárlaganna. Og sjálf er bók-
in eitt dæmið: tugir þúsunda sett-
ir í prentun þessháttar rita, sem
•engin heimild var til.
Eg hef nú sýnt fram á, hvern-
:ig fjárkreppan verður til úti í
heimi, og hvernig hún skellur
hér að ströndunum. Og svo hvern-
ig stjórnin hefir aukið öll áhrif
hennar í stað þess að draga úr
þeim, bæði með því að vera fremst
í flokki um fjáreyðslu þegar úr
þurfti ' að draga, og með því að
fela kreppuna og fresta henni
þegar eina bót meinanna gat
verið sú, að menn sæi hvernig
komið var, og að haldið væri aft-
nr af þeim.
Það er nú auðvitað ekki nema
•önnur hlið á sama máli þegar eg
nú vík að því, hvernig það opin-
bera er undir það búið, að taka
mannlega móti þessum vágesti.
Eg hef nú lýst því, hvernig
stjórnin gekk fram fyrir skjöldu
þegar hún átti að standa að baki
og þá náttúrlega afleiðingin sú,
að hún verður nú að híma að
baki, þegar hún ætti að ganga
fram fyrir fylkingarbrjóst. Sá
sem hefir eytt öllu sínu púðri
ineðan ekki var nema til ógagns
að skjóta, er svo varnarlaus þeg-
ar á hann er kallað. Það hefir
sennilega ekki verið sagt öllu
naprara háð um þessa stjórn en
hennar eigin orð um það, að
bændur væri nú „brynjaðir‘‘ gegn
kreppunni.
Eg ætla aðeins að benda á fá-
ein atriði.
1. Tekjur góðu áranna eru eydd-
ar, og ríkissjóðurinn því tóm-
ur. Það er andstæðan við að-
ferð Jóseps í Egiptalandi. En
það er í samræmi við kenn-
ingar Jónasar Jónssonar í
Tímanum, að það sé um að
gera að nota allt, sem aflist
í góðærunum, og nýársræðu
forsætisráðherrans. Þeir hafa
lýst vel sjálfir sínu forustu-
starfi.
2. Lánsfé hefir verið veitt til
manna og þeir laðaðir út í
framkvæmdir, sem nú gefa
tap og annað ekki.
3. Opinberar framkvæmdir voru
afar-miklar og nú stöðvast
allt. Allur þessi fjöldi manna
stendur slyppur eftir, auk
allra þeirra, sem annars stað-
ar missa atvinnu. Það hefði
sennilega verið fulltsvoheppi-
legt, að taka nú til þessara
framkvæmda, byggja nú
skólahús og Arnarhvol, leggja
3