Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 59

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Page 59
Stefnir] Fjármeðferð stjórnarinnar. 59 skuldugs ríkissjóðs en ekki frjáls- ir menn í frjálsu landi. Eg hefi orðið þess var, að blöð stjórnarinnar hafa nú að undan- förnu minnst á það, að árið 1924, þegar andstöðuflokkur núver- andi stjórnar tók við völdum, hafi skattarnir verið hækkaðir, þó að þá væri ekki gott í ári. Þess vegna hljóti okkur nú að þykja eðlilegt, að hækka skatt- ana. En náttúrlega geta stjórn- arblöðin þess ekki, að 1926, þeg- ar afkoma atvinnuveganna versn- aði, var slakað verulega til á sköttunum, enda voru hinar auknu tekjur, sem af sköttunum leiddu, notaðar til að létta skuldabyrðina á ríkissjóði. I þessu kemur fram í stórum drátt- um stefna Sjálfstæðisflokksins í fjármálum ríkisins. Flokkurinn játar og viðurkennir nauðsyn þess að leggja á landsmenn byrð- ar til þess að tryggja afkomu rík- issjóðs ef ekki er eytt úr hófi fram. Hinsvegar neitar flokkur- inn því afdráttarlaust að vinna að því að útvega tekjur til óhóf- legrar eyðslu. Flokkurinn telur það bein svik við kjósendur sína, sem eruj nærri helmingur allra kjósenda landsins, að stuðla að því að fram úr hófi eyðslusöm stjórn, hafi jafnan nægilegt fé til að ausa út, hvernig sem fer um hag landsmanna. Hæstvirt stjórn getur því alls ekki búist við því, að auknir skattar verði samþykktir nú með atkvæðum Sjálfstæðismanna, nema fullar tryggingar komi fyrir því, að skift verði um í meðferð fjár rík- isins og slík trygging næstx ekki nema skift verði um menn í stjórninni, að minnsta kosti að einhverju leyti. Eg finn það vel, að í því, sem eg hefi sagt, liggur hai’ður áfell- isdómur um fjármeðferð hæstv. stjórnar og eg tel mér skylt að rökstyðja þetta. Eg mun gera það í eins stuttu máli og eg tel mér fært og mun sleppa öllum köpur- yrðum en láta tölur tala eins skýrt og rétt og mér er auðið. Fyrst mun eg athuga fjár- notkun stjórnarinnar undanfar- in 4 ár og styðst eg þar við fjár- lög og landsreikninga árin 1928, 1929 og 1930 en við skýrslu hæstv. fjármálaráðherra að því er snertir árið 1931. Síðan mun eg athuga nokkuð hvað hæstv. stjórn ætlast fyrir um fjárnotk- un 1932 og 1933. Samkvæmt fjárlögum hafa tekjur ríkissjóðs verið áætlaðar af þinginu þannig talið í hundr- uðum þúsunda:

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.