Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Qupperneq 71
Stefnir]
Fjármeðferð s.tjórnarinnar.
71
■að Landsbankinn borgar því aðeins
vexti, að verulegur ábati sé á
bankarekstrinum. Að öðrum kosti
verður ríkissjóður einnig að borga
vexti af þessari fjárhæð að ein-
hverju eða öllu leyti.
Þessar tölur, sem eg hefi hér
nefnt, eru teknar eftir LR. 1927
og 1930. Báðir þessir reikningar
■eru samdir af Framsóknarstjórn-
inni, svo af hennar hálfu getur
ekki verið von á andmælum gegn
bessu. Auk þessa hafa stundum
verið taldar til skulda ríkissjóðs
rúmlega 16 milj., sem aðrar stofn-
anir en ríkissjóður eiga að sjá
um að öllu leyti, en þeim sleppi
eg alveg í þessu sambandi, þótt
þær stundum hafi verið taldar til
hinna eiginlegu ríkissjóðsskulda,
því að það er alveg rangt. Á þenn-
an hátt hefir það verið fengið
fram, að skuldir ríkissjóðs væru
um 40 milj. kr.
Á árinu 1931 hefir verið borg-
að af skuldum í'íkissjóðs eftir
samningum, en síðan í árslok
1930 hefir fallið á ríkissjóð á-
byrgð fyrir h.f. ,,Kára“, tæpar
200 þús. kr., sem mun vera ó-
greidd. I þá ábyrgð gekk Fram-
sóknarstjórnin 1922 eða 1923.
Síðan í árslok 1930 hefir einnig
komið í ljós tapið mikla á síldar-
oinkasölunni, svo að þrátt fyrir
afborganir ríkissjóðs 1931, eru
skuldir hans líklega heldur hærri
nú en í árslok 1930.
Þessar tölur um ríkisskuldirn-
ar hefi eg, eins og eg tók fram
áðan, tekið eftir LR. Þetta hefði
verið óþarft að taka fram, hefði
fekki þeirri fáránlegu kenningu
verið haldið á lofti, að ríkisskuld-
irnar hefðu eiginlega ekki vaxið
í tíð núverandi stjórnar. Eg man
meira að segja ,eftir, að eg hefi
séð það í aðalstjórnarblaðinu al-
veg nýlega, að íslenska ríkið væri
sema sem skuldlaust. Væri þetta
hlægilegt mál, mundi maður
brosa yfir þessu og spyrja, hvers
vegna væri verið að borga á aðra
miljón kr. í vexti á ári, ef sama
og engar væru skuldirnar. Nei,
því miður er ríkissjóður sokkinn
í skuldir.
Það mun láta nærri, að þær
skuldir, sem voru 1927, séu nú,
vegna afborgana, komnar niður
í 8 milj. kr. Ef engin lán hefðu
verið tekin síðan, sem ríkissjóður
ætti að standa straum af, og hefði
bara helmingurinn af því, sem á
undanförnum 4 árum hefir kom-
ið í ríkissjóðinn auk þess sem Al-
þingi ráðgerði, verið notaður til
skuldagreiðslu, þyrfti ríkissjóður
nú ekki að standa straum af
neinum skuldum. Hvílíkur óend-