Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Side 74

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira. - 01.01.1932, Side 74
74 Fjármeðferð stjórnarinnar. [Stefnir borgað hefir verið 1931 er mér ókunnugt um. Þetta er lítill forsmekkur af meðferð fjár Landhelgissjóðs, en miklu meira hefir honum þó blætt vegna snattferða varð- skipanna og vitanlega rík- issjóði líka, sem hefir borg- að helming af strandgæsl- unni. 7. Við endurskoðun L.R. 1930 kom í ljós, að einum héraðs- lækni landsins höfðu verið greiddar nærri 2000 kr. um- fram hámark launa þess héraðs. Þetta atriði mun koma til meðferðar hér á þinginu síðar og mun eg gefa þessari háttvirtu deild kost á að skera úr, hvort slíkar gjafir til þess manns, sem hér á í hlut, skuli eiga sér stað framvegis. 8. Við endurskoðun L.R. kom líka í ljós, að stjórnin hef- ir á því ári greitt einum hæst- launaða embættismanni landsins uppbót á laun hans undanfai-in ár. Uppbót þessi nam yfir 10000 kr. og fyrir henni hefi eg ekki getað fundið neina heimild. 8. Starfrækslukostnaður við em- bætti tollstjóra, lögmanns og lögreglusjtófa í Reykja- vík hefir 1930 orðið undir 260000 kr. Til samanburðar má geta þess, að skrifstofu- kostnaður allra sýslumanna og bæjarfógeta á landinu er um 100000. 10. Eg nefndi áður síldarbræðslu- stöðina á Siglufirði og gat þess, að hún hefði kostað um P/4 millj. kr. En þar með er ekki allur kostnaður talinn. Hún kostaði miklu meira. Auk þess sem ríkis- sjóður lagði fram, lagði Siglufjarðarkaupstaður til lóð og eitthvað af húsum og bryggjum, sem þó biluðu fljótt. Það sem Siglufjarðar- kaupstaður lagði fram, var metið á 200000 kr., svo að 1 millj. kr. og 700000 kr. hefir þetta allt kostað og er það nokkuð meira en verð allra húsa og allra jarða eftir gild- andi fasteignamati í einni af beztu sýslum landsins, Aust- ur-Húnavatnssýslu. Hér er 'því ekki klipið við nögl um kostnaðinn og eiginlega er það ótrúlegt, bæði að hægt skuli hafa verið að gera kostnaðinn svo gífurlegann sem raun hefir á orðið og eins að hæstv. stjórn skuli hafa séð fært að leggja frarn

x

Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir: tímarit um þjóðmál og fleira.
https://timarit.is/publication/1024

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.