Sagnir - 01.05.1982, Síða 31
Brúður í brúðarskarti.
hefur verið þó nokkuð lagt upp úr því að
konur hefðu börn sín á brjósti. Dómur frá
1624 þar sem beðið er um náðun fyrir konu
,,vegna hennar unga brjóstabarns“4) styður
það að menn hafi talið það sjálfsagt að
börnin fengju móðurmjólkina. Og dómur
sem árið 1654 segir frá 1 árs gömlu barni ,,er
í brunn hafði fallið, þaðan lífs tekið, og
síðan lifað í tvö dægur og sogið sinnar
móður brjóst“5) segir okkur greinilega að
börn voru höfð á brjósti allavega 1.
aldursárið. í þessum tveimur tilfellum er
trúlega um fátækar konur að ræða þótt þess
sé ekki getið í skjölunum. Þá má benda á að
sumar efnaðar konur sóttust eftir að láta
börnin vera á brjósti. Kona Jóhannesar
Petersens Kleins fógeta á Bessastöðum hafði
barn sitt á brjósti en vegna veikinda hennar
var önnur mylk kona fengin til að hafa
barnið á brjósti.6) Það var allt kapp lagt á að
barnið fengi móðurmjólkina.
Þegar kom fram á 18. og 19. öld voru það
aðeins sárafá börn sem fengu að njóta
hennar. Voru það aðallega börn fátæklinga
sem höfðu ekki kost á annarri mjólk. Konur
fátækra bænda7) og konur í verstöðvunum8)
neyddust til þess að gefa börnum sinum
brjóstamjólk því þær höfðu enga kúamjólk-
ina. Fátækar konur úr sjávarplássum voru
duglegastar að gefa börnum sínum brjóst,
kom það ekki til af góðu að áliti samtíma-
manna þeirra. Það er fyrir fátæktar sakir.
Neyðin kennir naktri konu að spinna. Að
vísu má lesa það út út sumum heimildum að
konur hafa haft börn mjög stutt á brjósti9), í
mesta lagi 8 daga eins og Anderson10) segir
frá eftir ummælum íslandsverslunarfara frá
Amsterdam. Þessi heimild er ekki mjög
ótrúleg því aðrar geta þess að konur reyndu
að fá mjólk lánaða hjá nágrannabændum
handa börnunum sem fyrst. Ef tekið er mið
af heimildum frá 19. öld má telja að þessi
siður hafi þótt sjálfsagður og fátækum
konum jafnvel vorkennt það að þurfa að
hafa börn sín á brjósti.11) Seinni partur
aldarinnar einkenndist af því að landlæknir
og fleiri fóru að berjast fyrir þvi að konur
gæfu börnum sínum brjóst og sögðu
barnadauðann hiklaust vera meiri vegna þess
að börnin fengju ekki þá mjólk sem þau fyrst
og síðast ættu að fá úr móðurbrjósti.
Ýmislegt fór að breytast í þessum efnum.
Karlar jafnt og konur fóru að leggja hlustir
við og breyta eftir góðum boðum. Á fyrstu
áratugum 20. aldar var þetta nokkuð
blandað. Þó tíðkaðist það víða að hafa börn
ekki á brjósti.12)
Hvers vegna voru börn ekki höfð á
brjósti?
Svo sem fram kemur í inngangskaflanum
hafa sérfræðingar ekki fundið neina skýr-
ingu á þessum óvana. Jón Steffensen og
Helgi Þorláksson hafa ekkert svar við þessu
en Árni Björnsson hefur látið sér detta í hug
hvort næringarskortur hafi átt einhvern þátt
í þessu tiltæki kvenna. En um þetta er erfitt
að segja. Sennilega komu útlend áhrif þar
til.13) Að minnsta kosti voru konur í Frakk-
landi haldnar ýmsum fordómum um brjósta-
gjöf svo sem að það væri sársaukafullt og að
það spillti útlitinu, fyrir utan það að kona
mátti ekki sjást á meðan að hún gaf barninu
brjóst.14) Náttúrufræðingar munu hafa talið
kúamjólkina þá hollustu sem völ var á15). Er
þá að undra þótt konur gripu til þessa náðar-
meðals? Ástæður þær sem gefnar hafa verið
hérlendis felast í því að konur hafi verið of
uppteknar við vinnu til að gefa barninu sínu